staða verknáms.
Virðulegur forseti. Nú ber svo við að ég er nokkuð sammála því sem hæstv. menntamálaráðherra hefur verið að segja um þessi mál, svona í meginatriðum, þ.e. að leita þurfi nýrra og fleiri leiða til að efla verknám í landinu og auka það og efla. En að sama skapi er ég nokkuð ósammála því sem hann er að gera í þeim málum. Mér finnst ekki falla vel saman orð og gerðir hjá hæstv. ráðherra, eins og kom reyndar fram í umræðum í gær.
Mikilvægi starfsnáms er auðvitað augljóst og þarf ekki að deila um það, ég held að allir séu sammála um þá hluti. Gerðar hafa verið margar ágætistilraunir á undanförnum árum og áratugum til að efla starfsnám og bæta það, til dæmis á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi, en margar þeirra hafa ekki gengið sem skyldi. Ef ég man rétt er enginn verknámsskóli frá Akranesi vestur og norður um alveg til Sauðárkróks. Þar hefur nú oft gengið á ýmsu en ég held að sá skóli sé í ágætismálum í dag og í einhverri sókn. Auðvitað eru margar ástæður fyrir þessu, þetta er dýrt nám, upptökusvæðin eru ekki alltaf stór og nemendafjöldi ekki alltaf mikill.
Fram kom hjá ráðherra áðan, ég held að hann hafi sagt það tvisvar ef ekki þrisvar, að ekki stæði til að gera það sem þó hefur komið fram í ritum ríkisstjórnarinnar og ekki síst af hálfu ráðherra, þ.e. að fækka nemendum eða takmarka aðgengi nemenda sem eru orðnir eldri en 25 ára að námi, starfsnámi. Ég held að mikilvægt sé fyrir menntamálaráðherra að tala skýrar í þessum málum því að skólameistarar um allt land misskilja herfilega það sem ráðherra segir og gerir. Verið er að leggja niður starfsbrautir, verið er að fækka nemendum bara núna eftir nokkra mánuði í nokkrum skólum, m.a. í Reykjavík, (Forseti hringir.) og norður í landi þar sem verið er að gera merkilega tilraun að mínu mati, norður í Fjallabyggð, með blöndu af bóknámi, (Forseti hringir.) óhefðbundnu námi og verknámi, en þar stendur til að fækka nemum um áramótin. (Forseti hringir.) Ég held að ráðherra þurfi að gera gangskör að því að tala skýrar (Forseti hringir.) og koma skilaboðum skýrar frá sér.