144. löggjafarþing — 20. fundur,  16. okt. 2014.

staða verknáms.

[11:23]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni og hæstv. ráðherra fyrir þessa umræðu. Hún hefur bæði verið málefnaleg og góð og mér sýnist að allir séu sammála um markmiðin. Það sem við viljum sjá á þessu sviði eins og öðrum er fjölbreytt og sveigjanlegt nám sem taki bæði mið af þörfum viðkomandi nemenda og ekki síst atvinnulífsins, en eins og komið hefur fram hefur nokkuð skort á það miðað við úttekt OECD.

Almennt má segja að slíkt nám skorti og það hefur verið í umræðunni svo áratugum skiptir, hv. þm. Sigurður Páll Jónsson fór aðeins yfir umræðuna eins og hún hefur verið um langa tíð. Ef við erum sammála um markmiðin ættum við að geta farið í að ná samstöðu um þennan málaflokk.

Mér fannst eitt vera mjög áhugavert hjá hv. þm. Bjarkeyju Gunnarsdóttur. Hún nefndi nokkuð sem gleymist stundum. Hún sagði að menn hefðu eðli málsins samkvæmt ekki komist eins mikið á samning og hún hefði viljað sjá, og við hefðum viljað sjá. Það leiðir hugann að því að við höfum kannski ekki forgangsraðað rétt þegar kemur að þessum málum. Það er ekki nóg að leggja áherslu á það sem snýr að skólum og öðru slíku. Það þarf líka að huga að því að atvinnulífið er það sem drífur þetta áfram. Eftirspurnin er þar og þar eru aðilar sem geta tekið fólk á samning, það er nauðsynlegur hlekkur í þessu.

Hingað kom gamall sænskur jafnaðarmaður eftir bankahrunið og ráðlagði okkur meðal annars að setja allt hvað við gætum í að halda uppi atvinnustiginu og meðal annars verklegum framkvæmdum. Við hefðum kannski betur hlustað á það. Við breytum því ekki, en það er ánægjulegt að heyra hve góð samstaða er um mikilvægi þessa málaflokks. Mér heyrist að ágætur rómur sé gerður að því sem hæstv. ráðherra er að gera (Forseti hringir.) í þessum málaflokki.