144. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2014.

menningarsamningar landshlutasamtakanna.

[15:21]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Mig langar aðeins að ræða menningarsamninga við landshlutasamtök. Síðast þegar rita átti undir menningarsamninga var allt í upplausn einhverra hluta vegna og dróst um marga mánuði að skrifa undir samningana. Málið fór í nokkra hringi og menningarfulltrúar og sveitarstjórnarfólk í menningarráðum þurfti að eyða ómældum tíma í ferðalög til Reykjavíkur að hitta embættismenn, þingmenn og ráðherra. Við þetta var mikill kostnaður og mikill tími fór í þetta. Þeim tíma og peningum hefði betur verið varið í annað.

Mér finnst það ábyrgðarhluti hjá stjórnvöldum þegar þau í aðgerðum sínum eða aðgerðaleysi skapa upplausn og óvissu, að þeir sem starfa á þessu sviði viti aldrei við hverju er að búast og geti ekki skipulagt sig fram í tímann. Ég held að hæstv. ráðherra þekki þetta og að við séum sammála um að ekki var góður bragur á þessu í fyrra.

Menningarsamningarnir hafa margoft verið teknir út og ég get vísað í úttekt sem Capacent gerði á samningunum árin 2011–2013, sem var unnin fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið. Niðurstaðan var mjög jákvæð og við erum að ná þeim markmiðum sem lagt er upp með í þessum samningum. Ef við ætlum ekkert að nýta þessar skýrslur og úttektir sem við erum að gera legg ég til að við hættum að setja peninga í þær.

Í fjárlagafrumvarpinu fyrir 2015 er gert ráð fyrir 207 millj. kr. í þessa menningarsamninga auk 40 millj. kr. úr atvinnuvegaráðuneytinu. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann geti ekki örugglega fullvissað okkur um að þessi mál séu í góðum farvegi, að skrifað verði undir samningana um eða fyrir áramót eins og venja er þannig að við þurfum ekki að upplifa sömu vitleysuna og var hér í gangi í fyrra og fram eftir ári. Ég er í raun bara að biðja um eitt já, hvort þessi mál verði ekki örugglega í góðum farvegi.