endurskoðun tvísköttunarsamninga.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir þessi svör. Ég tel ekki hægt að horfa á málið svona einfalt. Það eru ákveðin lönd sem þyrfti að skoða sérstaklega, þar með talinn tvísköttunarsamningurinn við Lúxemborg. Ef þetta er aftur á móti ekki gert þar sem félögin hafa stofnað fyrirtæki í Lúxemborg til að sjá um eignarhaldið hér til að greiða 5% skatt í staðinn fyrir 20% sem annars er, hefur þá ráðuneytið haft í huga mögulega lækkun á þessum skattstofni til þess að ná að minnsta kosti tekjunum til landsins? Þá er minni hvati fyrir þessa aðila til að fara með peningana úr landi.
Við erum ekki að tala um neitt ólöglegt í þessu sambandi heldur aðeins löglega lágmörkun skatts. Ljóst er út af þeim miklu hækkunum sem orðið hafa að við verðum að huga að því þegar að útgreiðslu kemur hvernig skattlagningu verður háttað.