144. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2014.

menntun íslenskra mjólkurfræðinga.

188. mál
[16:18]
Horfa

Jóhanna María Sigmundsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Ég þykist þekkja aðdraganda þessarar fyrirspurnar og þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að leggja hana fram. Mér finnst nauðsynlegt að taka fram að mjólkurfræðingar starfa ekki aðeins í mjólkursamlögum, þeir starfa líka m.a. í sælgætisgerðum, ölgerðum og öðru og einnig við rannsóknir og vöruþróun.

Það sem hæstv. menntamálaráðherra kom inn á er að samstarf Íslands og Danmerkur varðandi mjólkurfræðinámið byggir á samstarfi fræðslunefndarinnar og skólans úti. Ég held að það þurfi að skoða svolítið í því samhengi samkomulag Norðurlandanna um nám milli landamæra og þau loforð sem við höfum gefið hvert öðru þar.

Mig langar einnig að segja að á sama tíma og þessi fyrirspurn kom fram lagði ég fram tillögu til þingsályktunar um eflingu náms í mjólkurfræði þar sem leitað verður leiða og athugað hvort hægt sé að hjálpa Íslendingum að komast í slíkt nám og þá hvort íslenskur mjólkuriðnaður geti komið þar að eða hvort ríkið getið með öðrum hætti náð að leysa úr þeim vanda sem þessi háu námsgjöld eru.