144. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2014.

ADHD-teymi geðsviðs Landspítala.

247. mál
[16:36]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Herra forseti. Á fundi hv. velferðarnefndar í morgun kom fram hjá landlækni að þjónusta ADHD-teymisins á Landspítalanum er ákaflega mikilvæg og að á borði embættisins liggja fyrir tillögur um að efla hana enn frekar eins og hér hefur komið fram til þess að tryggja betri þjónustu við fullorðna einstaklinga sem leita eftir greiningu, aðstoð og meðferð við ADHD. Það er nefnilega ekki hlaupið að því fyrir þetta fólk að fá greiningu. Fáir geðlæknar sérhæfa sig í þessu og biðin er löng. Það sem af er árinu hafa yfir 270 tilvísanir komið til teymisins. Það segir meira en margt um þörfina.

Ég vil hvetja hæstv. ráðherra til að verða sem fyrst við tilmælum landlæknis um að styrkja ADHD-teymið og hlutverk þess innan þeirrar meðferðar og aðstoðar sem við ræðum hér. Ég kýs að túlka orð hæstv. ráðherra þannig að það sé forgangsverkefni hjá honum (Forseti hringir.) að tryggja að ADHD-teymið verði ekki lagt niður um áramót.