ADHD-teymi geðsviðs Landspítala.
Herra forseti. Þeir einstaklingar sem greinast með ADHD á fullorðinsárum og fara á lyf upplifa grundvallarbreytingar á lífi sínu; þeir öðlast nýtt líf og átta sig á að þeir erfiðleikar sem þeir hafa átt í frá æsku mátti rekja til athyglisbrests og/eða ofvirkni. Það er því gríðarlega mikilvægt þegar við ræðum um ADHD-teymið að horfa fyrst og fremst á það sem mikilvæga skipulagða, faglega, sérhæfða þjónustu við fólk með ADHD. Þetta er spurning um gríðarleg lífsgæði sem fólk er annars að verða af og hefur áhrif á líf þess sem og aðstandenda.
Það er því gríðarlega mikilvægt að ekki sé deilt um hvort fyrir liggi fjárveiting eður ei. Þessar fjárveitingar hafa verið utan ramma hingað til. Landspítalinn telur sig ekki hafa fjárveitingar til verkefnisins og er auk þess með ramma sem er a.m.k. 1.500 millj. kr. of þröngur. Það er augljóst að sjúkrahús sem getur ekki uppfyllt lagalegar skyldur sínar mun ekki geta sinnt þessu verkefni að óbreyttu.
Það má síðan gefa í skyn að það sé furðuleg forgangsröðun, en það er einfaldlega blákaldur veruleiki á þessu aðalsjúkrahúsi landsins.
Ég vil því spyrja ráðherra út í þær sérstöku samningaviðræður sem hann sagði að væru í gangi eða gaf í skyn að væru í gangi. Hvar er sú vinna stödd? Er hann ekki tilbúinn til þess að veita 40 millj. kr. í verkefnið sem til lengri tíma litið sparar gríðarlega fjármuni og umbyltir lífi fjölda fólks? (Forseti hringir.)