144. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2014.

um fundarstjórn.

[17:35]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég tek undir með þeim tveimur hv. þingmönnum sem hér hafa talað. Þar sem hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra er í húsi hefði hún getað setið hér við umræðuna. Rétt eins og sá þingmaður sem talaði á undan mér benti á þá er Norðurlandaráðsþing fram undan þar sem þessi mál hafa verið unnin undanfarin ár.

Forseti þingsins tilkynnti á fundi á mánudaginn var að hæstv. heilbrigðisráðherra yrði viðstaddur umræðuna að einhverju leyti. Nú er komið að því að upplýsa hvað „að einhverju leyti“ þýðir, hvort það verður nú við upphaf umræðunnar, í henni miðri eða hvenær. Ég held að það sé alveg útilokað, eins og hér kom fram, að henni verði haldið áfram eða hún kláruð án aðkomu ráðherra.

Ef stjórnarliðar vilja greiða fyrir málinu hlýtur hæstv. heilbrigðisráðherra að koma hingað og tjá okkur þá skoðun eins og kallað hefur verið eftir og hér var vitnað til sem meðal annars stangast á við framkomna stefnu í heilbrigðismálum.