144. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2014.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

17. mál
[18:25]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég get ekki svarað fyrir þá norrænu könnun og skýrslu sem hv. þm. Jóhanna María Sigmundsdóttir rakti ítarlega í ræðu sinni um daginn. En það vakti athygli mína að hún benti sérstaklega á að niðurstaða skýrslunnar væri að það væri ekki svo mikill árangur af því að auka fé til forvarna.

Hv. þingmaður telur að við sem mælum á móti þessu frumvarpi viljum hverfa aftur til eldri tíma. Það er rangt, við viljum horfa til framtíðar. Við viljum fylgja þeim lýðheilsumarkmiðum og þeim ráðleggingum sem hafa dugað best í þeim tilgangi að verja lýðheilsu þjóðarinnar gagnvart áfengisbölinu. Neysla þeirra sem með kunna að fara er af mörgum talin of dýru verði keypt og þá er vísað til þeirra áhrifa sem ofneysla áfengis hefur, ekki bara á þann sem neytir, (Forseti hringir.) heldur á börnin hans, fjölskylduna og samfélagið allt.