144. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2014.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

17. mál
[18:39]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Í ljósi þess sem kom fram í máli hv. þingmanns um barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna langar mig að spyrja hvort hann hafi skýringu á þeim mikla árangri sem náðst hefur í að minnka unglinganeyslu á Íslandi sl. 10–15 ár þrátt fyrir aukið aðgengi, meiri sýnileika, fleiri vínbúðir sem eru opnar lengur og eru með sýnilegt áfengi, vinalegra nafn, vinalegra lógó, og auðvitað sífelldar ábendingar um að menn komist fram hjá banni á auglýsingum. Við skulum þó hafa það alveg á hreinu að tillagan sem við ræðum varðar ekki auglýsingabann, hún slakar ekkert á því.

Ég leita í þessum umræðum að skýringu á því hvers vegna við höfum náð gríðarlegum árangri í að draga úr unglinganeyslu þrátt fyrir að þróunin hafi á sama tíma verið í þveröfuga átt við það sem hv. þingmaður vill, að því er virðist. Sömuleiðis velti ég því fyrir mér, og ég skil þetta ekki virkilega ekki, að menn vilja draga úr áfengisneyslunni og benda á úrræði sem þeir telja gagnast við það, en þeir stinga aldrei upp á því að fara þá leið að takmarka aðgengið meira en gert er núna, fara aftur í tímann í þeim efnum. Enginn stendur hér og segir: Förum aftur til ársins 1987. Engum virðist finnast það góð hugmynd.

Þá var minni neysla, heildarneysla, það var takmarkaðra aðgengi, það var stofnanalegra nafn, og ég velti fyrir mér: Hvernig stendur á þessu?