verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Herra forseti. Ég sagði að hv. þingmaður hefði ekki vitnað til rannsókna sem hrekja það sem hér hefur komið fram, þ.e. rannsóknar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og norrænu rannsóknarinnar.
Mikilvægust í forgangsröðinni eru mennta- og menningarmál. Þangað getum við lagt meiri peninga en kosið hefur verið að gera það ekki. Þar inni er meðal annars framlag til forvarnafulltrúa í framhaldsskólum. Ég hugsa að það verði nánast slegið af í skólum núna miðað við fram komið fjárlagafrumvarp.
Þetta er í rauninni forgangsröðunin sem við stöndum frammi fyrir núna. Það er forgangsröðun Sjálfstæðisflokksins að setja brennivín í búðir (Gripið fram í.) í staðinn fyrir að auka fjármuni þar sem þeir eiga betur heima, til að mennta þjóðina, til að veita upplýsingar, til að koma að forvarnastarfi. Það þarf ekki að gerast svona. Þetta er alger forsenda fyrir því hvernig við ætlum að afla fjár og hvernig við ætlum að útdeila því.
Það að halda því fram að þetta skili okkur svo miklum peningum og að við þurfum engu að eyða á móti er rökleysa að mínu mati. Það er talað um að það þurfi tvö ár í mótvægisaðgerðir. Það kostar. Heldur hv. þingmaður virkilega að það kosti bara tvö ár? Heldur hv. þingmaður að ef aðgengi verður aukið um allar koppagrundir þá aukist ekki aðgengi ungs fólks? Ég er þess alveg fullviss. Á því byggi ég meðal annars andstöðu mína við þetta frumvarp.