verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Herra forseti. Það væri fróðlegt að fá það nánar uppgefið hjá hv. þingmanni hvað vínbúðirnar þurfi að vera þétt til þess að hann væri ánægður. Þarf það að vera á hverju götuhorni? (Gripið fram í: Helst.) Þarf það að vera inni í miðri götu ef hún er löng eða í báða enda? Hvert vill hv. þingmaður fara með þetta til þess að hann sé ánægður?
Hv. þingmaður ræðir aðgengismálin eins og þau snúist eingöngu um fjölda sölustaða. Það tel ég einfeldnislega nálgun, ég ætla að leyfa mér að nota það orð af því að hv. þingmaður hefur býsna stór orð um málflutning annarra sem honum finnst með öllu óskiljanlegur.
Vandinn við þá nálgun er sá að það skiptir máli á hvaða forsendum aðgengið er sem skipulagið býður upp á. Fyrirkomulag okkar er stýrt aðgengi, það er hluti af okkar stefnu. Það er umgjörð um þessa starfsemi eins og er mjög skýrt tekið fram í 2. gr., markmiðsgrein, laga um verslun með áfengi og tóbak. Þar er útskýrt hver hugsunin er á bak við það að viðhafa þetta fyrirkomulag, sama gildir um fyrirkomulagið í hinum norrænu ríkjunum þremur.
Í öðru lagi er þetta aðgengi í grundvallaratriðum á öðrum forsendum heldur en ef einkarekin verslun er farin að höndla með áfengi. Ágóðaþátturinn er tekinn úr sambandi þar sem það er ekki markmið ÁTVR að selja sem mest af vörunni eða græða sem mest á því peninga eða nota vöruna til að lokka að viðskiptavini til að kaupa aðrar vörur o.s.frv. Allt þetta er aftengt með sérverslun sem er rekin á þessum forsendum.
Það er skrýtið að þurfa að útlista þetta fyrir kapítalistum sem ég hélt að gerðu út á gróða- og ágóðavonina sem drifkraft hlutanna. Er það ekki þannig sem kerfið á að virka í hinum kapítalíska heimi?
Varðandi rannsóknir sem hv. þingmaður gaf nú lítið fyrir almennt þegar einhverjir nota þær sem eru honum ekki sammála, en hann fann eina rannsókn, breska rannsókn. Þar var sannleikurinn fundinn. Þeim mun fleiri krár, þeim mun betri bæjarbragur. Þeim mun meiri blómgun í atvinnulífi o.s.frv. (Forseti hringir.) Það var gaman að heyra.