verslun með áfengi og tóbak o.fl.
Herra forseti. Það fyrsta sem ég hefði spurt um, skoðandi þessa bresku rannsókn út frá því litla sem ég lærði í rannsóknarfræðum í raunvísindanámi, væri orsakasamhengið, hversu rækilega væri farið ofan í saumana á orsakasamhengi þess af hverju krár væru í blómlegri byggðarlögum. Voru byggðarlögin blómleg vegna þess að kráin var þar? Eða var kráin þar vegna þess að byggðarlögin voru nógu stór til þess að hún gæti borið sig? Ég kaupi ekki svona hrátt fyrr en ég hef séð forsendur slíkrar rannsóknar.
Hv. þingmaður nálgast málið út frá sjálfum sér og segir: Ég skil ekki að ég skuli þurfa að labba lengra. En er þetta ekki þannig í skipulögðu samfélagi? Erum við einstaklingar þar eða erum við félagsverur? Erum við hluti af samfélaginu? Erum við ekki með alls konar reglur? Erum við ekki með hraðatakmarkanir í umferðinni, reglur um lyf eða reglur um skotvopn sem við gætum út af fyrir sett okkur á háan hest gagnvart og sagt: Það þarf ekki mín vegna, ég er svo góður bílstjóri, ég fer svo varlega með skotvopn, ég misnota ekki lyf? Eiga þá reglurnar ekki að vera vegna þess að við treystum okkur persónulega sem einstaklingar til þess? Á samfélagið að byggjast þannig upp að út frá (Forseti hringir.) því hvað hver og einn einstaklingur telur að hann ráði við eigi reglur hins skipulagða (Forseti hringir.) samfélags að víkja?