144. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2014.

verslun með áfengi og tóbak o.fl.

17. mál
[21:03]
Horfa

Páll Jóhann Pálsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna en mig langar að bera fram spurningar til hans. Þeir sjálfstæðisþingmenn sem hér hafa talað í kvöld hafa mikið talað um að það sé prinsippmál hjá þeim að einkavæða. Það er eins og það sé málið, að einkavæða áfengissöluna.

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort það sama eigi við um hann, hvort það trufli hv. þingmann eitthvað að ríkið sé með einkarétt á sölunni. Hv. þingmaður nefnir að aukið aðgengi undanfarin ár hafi leitt til minni drykkju unglinga. En hann minnist ekki á hvernig það hefur virkað á aðra hópa, hvort það hafi leitt til meiri drykkju í öðrum aldurshópum.

Hv. þingmaður minnist á SÁÁ, að þeir séu öflugir, að þar sé öflug aðstoð. Ég spyr hvort hann hafi kynnt sér hvað SÁÁ segir um þetta frumvarp, hvort þeir séu hlynntir því. Hv. þingmaður hefur mikið álit á SÁÁ eins og ég, þar er mikið og gott starf unnið, og ég spyr: Hvað segja þeir um það mál?