144. löggjafarþing — 23. fundur,  22. okt. 2014.

störf þingsins.

[15:11]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Hálfkæringur og óljós svör vegna vopnavæðingar lögreglunnar valda áhyggjum. Þau eru ekki til þess fallin að draga úr áhyggjum þeirra landsmanna sem leggja áherslu á það að búa í friðsamlegu og vopnlausu samfélagi. Það er ekki málefni sem embættismenn eiga að taka ákvörðun um eða ráðherra hefur sem einkamál hvort ráðist er í stórfellda öflun á hríðskotabyssum til að setja í miklum mæli í almennar lögreglubifreiðar og leyna því fyrir þjóðinni og þinginu þegar það er gert.

Það er stór stefnubreyting í íslensku samfélagi sem þarf að ræða við þjóðina, sem þarf að ræða í þinginu og vega og meta meðal annars út frá öryggi lögreglumannanna sem í hlut eiga og út frá öryggismálum í samfélaginu yfirleitt.

Það væri algerlega fáránlegt og Alþingi fullkomlega til háðungar og þeim stjórnarliðum sem hér voru nefndir áður ef við sætum í þessum sal og ræddum fram og til baka um kosti og galla þess hvort lögreglan mætti hafa rafbyssur en síðan þurfi hvorki að spyrja þjóðina né þingið þegar keyptar eru 150 hríðskotabyssur (Gripið fram í.) og lögregluembættunum í landinu selt sjálfdæmi um það hvort þær verði settar í almennar lögreglubifreiðar. Þetta er samfélag okkar allra, þessar upplýsingar koma okkur öllum við. Það er sjálfsagt að ræða álitaefnið, hvernig best megi haga löggæslu- og öryggismálum í landinu, (Forseti hringir.) en það verður ekki gert best með leyndarinnflutningi og einkaákvörðunum ráðherra fram hjá þingi og þjóð.