144. löggjafarþing — 23. fundur,  22. okt. 2014.

aðgerðaáætlun til að efla fjarheilbrigðisþjónustu.

27. mál
[19:15]
Horfa

Flm. (Björt Ólafsdóttir) (Bf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka andsvarið og stuðninginn. Varðandi rafrænu sjúkraskrána mætti auðvitað flokka hana sem fjarheilbrigðisþjónustu en kannski fyrst og fremst styður þetta hvert annað, þetta yrði þá samþætt þjónusta sem allir fagaðilar geta nýtt sér til heilla fyrir þann sem verið er að þjónusta. Þetta talar auðvitað mikið saman.

Annað sem talar mikið saman og styður hvort annað er það sem hv. þingmaður nefndi, þ.e. að til að nýta fjarheilbrigðisþjónustu sem best þarf auðvitað netsamband að vera í lagi alls staðar á landinu. Ég held að þetta tvennt ætti að geta stutt mjög vel hvort við annað.