aðgerðaáætlun til að efla fjarheilbrigðisþjónustu.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að hrósa hv. þm. Björt Ólafsdóttur fyrir einkar áhugavert þingmál. Greinargerðin er mjög vönduð og ég sé að hv. þingmaður hefur lagt mikla rannsóknarvinnu í greinargerðina. Flutningsmenn tillögunnar koma úr öllum flokkum og það er mikill styrkleiki að mínu mati. Þar á meðal er sú sem hér stendur og er ég þakklát fyrir það.
Mig langar til að draga fram nokkur atriði úr greinargerðinni, m.a. það sem hv. þingmaður benti á áðan, að reynslan af slíkri fjarheilbrigðisþjónustu er mjög góð. Nefnir hv. þingmaður dæmi bæði frá Bretlandi og Grænlandi og einnig er reynslan frá Kirkjubæjarklaustri mjög góð. Ég þekki það beggja vegna frá og veit að þar er veitt góð þjónusta, fólk er ánægt með þessa þjónustu, en eins og hv. þm. Guðbjartur Hannesson kom inn á áðan er netsambandið þarna ekki eins gott og það þyrfti að vera, þannig að við þurfum að sjálfsögðu að horfa á þann þátt ef stefnan verður sú að byggja upp góða fjarheilbrigðisþjónustu á Íslandi. Það er mjög mikilvægt að þetta tvennt fari saman.
Að sjálfsögðu eigum við að nýta alla þá tækni sem við búum yfir í slík verkefni. Hér eru nefndir snjallsímar sem mjög margir eiga í dag, og vefmyndavélar, Skype var nefnt, flestallir eiga tölvur. Að sjálfsögðu eigum við að nýta tæknina til að tryggja öryggi og velferð allra sem í landinu búa.
Veruleikinn á Íslandi er sá að við búum í tiltölulega fámennu landi. Hér er mjög dreifbýlt. Heilbrigðiskerfið er okkur mjög dýrt. Það eru til þess að gera ekki margir einstaklingar sem halda því öllu gangandi þannig að ef við getum gert eitthvað til að hagræða og jafnframt veita góða þjónustu, og það eru þekktar leiðir til þess, þá eigum við að sjálfsögðu að gera það, það segir sig sjálft.
Með leyfi forseta langar mig að vitna aðeins í greinargerðina, en þar stendur:
„Þjónustuformið eykur hagkvæmni í rekstri og eflir skilvirkni í nýtingu starfsfólks. Fjarheilbrigðisþjónusta dregur úr kostnaði vegna ferða notenda sem og heilbrigðisstarfsfólks. Þá styrkir hún nákvæma skráningu heilbrigðisupplýsinga. Fjarheilbrigðisþjónusta er mjög ákjósanlegur kostur til að efla heilbrigðisþjónustu hér á landi og er einnig árangursrík leið til að efla lýðheilsu.“
Þetta eru mjög mikilvægir og sterkir punktar hvernig sem á þá er litið. Hér kemur einnig eftirfarandi fram, með leyfi forseta:
„Fjarheilbrigðisþjónusta hefur verið þróuð víða um heim undanfarna áratugi og rannsóknir sýna að ávinningurinn snýr að lífsgæðum og heilsu einstaklinganna sem njóta þjónustunnar, þekkingu og færni heilbrigðisstarfsfólks og lækkun kostnaðar við heilbrigðisþjónustu.“
Þetta eru akkúrat lykilatriðin, annars vegar að lækka kostnaðinn, eins og ég sagði áðan, og að tryggja góða þjónustu um allt land.
Flutningsmenn þessarar tillögu leggja til að heilbrigðisráðherra grípi til aðgerða til að styrkja fjarheilbrigðisþjónustu og að hann kynni Alþingi eigi síðar en 1. maí næstkomandi tímasetta aðgerðaáætlun um til hvaða aðgerða verði gripið til og hvenær.
Ég hrósa hv. þingmanni enn og aftur. Mér finnst þetta sérlega gott mál og á von á því að það fái góða og skjóta afgreiðslu í velferðarnefnd.