dómur Mannréttindadómstólsins í máli blaðamanns.
Virðulegi forseti. Mig langar til að beina fyrirspurn til hæstv. innanríkisráðherra vegna nýlegs dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Erlu Hlynsdóttur blaðamanns. Ég geri mér grein fyrir því að það er ákveðið millibilsástand í utanumhaldi og umsjón dómsmála í íslensku stjórnkerfi en mig langar engu að síður til að beina þessari fyrirspurn til hæstv. innanríkisráðherra enda hefur hún lengi farið með málaflokkinn og er að auki varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Nú er það svo að í úrskurði Mannréttindadómstólsins nú í vikunni er snúið við dómi íslenska ríkisins í máli Erlu Hlynsdóttur og reyndar annarrar blaðakonu sem hafði verið dæmd til að greiða skaðabætur vegna ætlaðra meiðyrða. Mér þykja þessir dómar mjög mikilvægir enda er gríðarlega mikilvægt að blaðamenn upplifi sig frjálsa og óhindraða í því að hafa hluti eftir viðmælendum sínum. Ljóst er af þessum dómi Mannréttindadómstólsins að hann gerir minni kröfur til sönnunarbyrði blaðamanna í þessum efnum en Hæstiréttur Íslands. Það eru ekki bara þeir tveir dómar sem falla í þessari viku í þessu máli heldur er þetta í annað skiptið sem annar þessara blaðamanna vinnur mál fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu.
Af því tilefni langar mig að fá umræðu um það í þennan þingsal og fá viðbrögð frá hæstv. innanríkisráðherra og varaformanni Sjálfstæðisflokksins, hvaða ályktanir hún dragi af þessari niðurstöðu. Þurfum við að bæta lagaumhverfið til þess að dómstólar standi sig í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar okkar og verndi tjáningarfrelsi íslenskra blaðamanna?