verndun friðhelgi einkalífsins í stafrænum miðlum.
Virðulegi forseti. Þetta er vandrataður vegur, hvenær upplýsingar eiga að vera tiltækar, hverjir mega nota þær og hvenær. Ég er sammála hv. þingmanni, það er óhugnanlegt að hugsa til þess að upplýsingar verði notaðar í slæmum tilgangi eins og við þekkjum og þingmaðurinn benti réttilega á. Það má líka velta fyrir sér hvort upplýsingasöfnun af einhverju tagi sé ekki líka mikilvæg til að vernda okkur en um þær þurfa þá að gilda ákveðnar reglur, að sjálfsögðu, um meðferð þeirra, hvað má og hvað ekki.
Þarna er vegur sem við þurfum einfaldlega að reyna að rata af mikilli skynsemi og hófsemi í báðar áttir.