upplýsingar til þingmanna við vinnslu breytingartillagna.
Herra forseti. Ég hef orðið þess áskynja við að vinna breytingartillögu við tekju- og útgjaldafrumvörp ríkisstjórnarinnar að þó að samkvæmt 46. gr. þingskapa megi leggja fram breytingartillögu, og sérstaklega er fjallað um þessi frumvörp í þingsköpum að þau skuli lögð fram fyrst og þeirra vegur er hafður mjög hár í störfum þingsins okkar, þá hef ég samt sem áður ekki sem þingmaður í vinnslu breytingartillagna við frumvörpin aðgang að upplýsingum til að geta unnið þessar breytingartillögur.
Ég hef spurt upplýsingasvið Alþingis. Það hefur ekki aðgang að þeim. Ég hef ekki aðgang að þeim.
Ég er búinn að spyrja ráðuneytið. Það tefst og tefst að fá svör þaðan þannig að ég hef ekki þær upplýsingar sem ég þarf til að vinna breytingartillögur.
Það sem mig langar að vita er: Er forseti meðvitaður um þetta? Ef ekki, mun hann þá gera skurk í því að skoða þetta mál og finna lausn á því þannig að ég geti unnið breytingartillögu við fjárlagafrumvarpið, fengið þær upplýsingar sem ég þarf?