144. löggjafarþing — 24. fundur, 23. okt. 2014.
upplýsingar til þingmanna við vinnslu breytingartillagna.
Forseti er allur af vilja gerður til þess að greiða fyrir því að hv. þingmenn geti unnið að efnislegum undirbúningi þingmála sinna, hvort sem um er að ræða breytingartillögur eða með öðrum hætti. Í því skyni hefur nú verið efld þjónusta við þingmenn, en forseti er alltaf tilbúinn til þess að reyna að gera betur og vill gjarnan ræða þessi mál frekar við hv. þingmann í þeim tilgangi að finna leiðir til að bæta starfsaðstöðu þingmanna á þessu sviði.