144. löggjafarþing — 24. fundur,  23. okt. 2014.

visthönnun vöru sem notar orku.

98. mál
[11:56]
Horfa

Ásmundur Einar Daðason (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ætli ég byrji ekki seinna andsvar mitt með sama hætti og hv. þm. Össur Skarphéðinsson. Hv. þingmaður hefur líklega oftúlkað orð mín lítillega hér áðan. Það er alltaf ánægjulegt þegar hv. þm. Össur Skarphéðinsson viðurkennir að skrifræðið í Evrópusambandinu sé orðið of mikið.

Ég hef hins vegar oft sagt að ég hafi áhyggjur af því að þegar kemur að öllum skrifræðispappírunum sem koma frá Evrópusambandinu erum við Íslendingar oft kaþólskari en páfinn að fara eftir því. (Gripið fram í.)Oft og tíðum er það oftúlkað í kerfinu, það er rétt hjá hv. þingmanni sem grípur hér fram í. Þess vegna er svo mikilvægt fyrir okkur að taka öllu sem kemur frá Evrópusambandinu með varúð vegna þess að sú hætta er fyrir hendi að það sé oftúlkað hér. Ég deili sýn hv. þingmanns á það að þegar við förum um Evrópu er það sama Evrópulöggjöfin sem menn vinna eftir þegar kemur að matvælum. En einhverra hluta vegna er það þannig í Suður-Evrópu að maður getur farið á markaði og keypt kjöt sem er heimaslátrað eða hænunum slátrað á markaðnum, en hér á Íslandi er eins og verið sé að vinna með geislavirkan úrgang ef um heimaslátrað er að ræða. (Gripið fram í.) Samt eru þetta sömu Evrópureglurnar sem verið er að vinna eftir.

Þetta er það sem hv. þingmaður ýjaði að í fyrra andsvari sínu, að það væri svo gott fyrir okkur Íslendinga að koma til Evrópusambandsins og hafa áhrif á það að löggjöfin færi ekki í átt til aukins skrifræðis. Miðað við það að flestöll samskipti yrðu á milli embættismanna Evrópusambandsins og Íslands þá hef ég áhyggjur af hinu gagnstæða, að Íslendingar mundu í auknum mæli taka við skrifræðinu frá Evrópusambandinu. En ég fagna því að hv. þm. Össur Skarphéðinsson sé núna kominn í hóp með þeim sem vilja berjast gegn þessu skrifræði og mér sýnist styttast mjög í að hv. þingmaður muni deila þeirri skoðun með mér að Íslandi sé best (Forseti hringir.) borgið utan Evrópusambandsins. Það er (Forseti hringir.) örlítill vegur þar á milli en það styttist í það og ég fagna því þegar Össur Skarphéðinsson kemst í þann hóp. (Gripið fram í: Bara bíða þangað til hann hættir.)