144. löggjafarþing — 24. fundur,  23. okt. 2014.

fjárhagsstaða RÚV.

[14:15]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir að hefja þessa umræðu. Eins og hér hefur komið fram eru skuldir RÚV mjög miklar og eru í rauninni að sliga reksturinn þannig að ekki verður hjá því komist núna að ráðast á vandann. Hann er ekkert nýtilkominn.

Það er staðreynd að húsnæðið er óhentugt og stórt og dýrt og sú hugmynd að selja húsið og lóðina gæti verið rökrétt til að grynnka á skuldunum. Mér leist ekki á hugmyndina þegar ég heyrði hana fyrst og kannski á sömu nótum og hv. málshefjandi kom inn á áðan, en ef RÚV skuldar svo mikið að það á í rauninni aðeins 6,5 milljarða eða hvað það er á RÚV ekkert þetta hús. Það á ekki fyrir skuldum sínum og kannski er það vænlegur kostur í stöðunni að selja þetta hús og leigja það áfram. Mér finnst þurfa að skoða það alvarlega og ég ætla ekki að ákveða að það sé slæm ákvörðun.

Mér finnst líka ábyrgðarhluti ef stjórnvöld lækka útvarpsgjaldið á næsta ári á meðan staðan er svona. Ég mælist til þess að nefskatturinn verði ekki lækkaður og RÚV fái aukatekjur til að vinna á vandanum — nema það eigi að breyta hlutverki RÚV þannig að reksturinn rúmist innan fjárheimilda. Ég hef hins vegar ekki heyrt neinar þannig tillögur.

Þá vil ég beina orðum mínum til hæstv. ráðherra: Er það ekki örugglega pólitísk ákvörðun ef það á að fara í einhverjar drastískar breytingar á hlutverki RÚV? Eða telur hæstv. ráðherra að stjórn RÚV eigi að leggja til róttækar breytingar? Mér finnst oft, ekki bara í þessu máli heldur mörgum öðrum, að menn séu að kasta ábyrgðinni svolítið á milli, að pólitíkin vilji ekki taka erfiðar ákvarðanir og allt fari einhvern veginn í lás. Ég get nefnt Íbúðalánasjóð og fleiri dæmi.

Ég hef fylgst með niðurskurði á landsbyggðinni og haft áhyggjur af honum. Ef þetta á að vera útvarp allra landsmanna þarf aðeins að spýta í þar, það er ekki eðlilegt að 5% (Forseti hringir.) starfsmanna RÚV vinni á landsbyggðinni og þar af flestir á Akureyri.