144. löggjafarþing — 25. fundur,  3. nóv. 2014.

afnám verðtryggingar.

[15:31]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Framsóknarflokkurinn lofaði afnámi verðtryggingar, en niðurstaðan er sú að verðtryggð lán eru stóraukinn hluti í skuldabréfaútgáfu bankanna. Íbúðalánasjóður undir forustu Framsóknarflokksins hefur horfið frá áformum um óverðtryggð lán. Í stað þess að afnema verðtryggingu býður Framsóknarflokkurinn í Íbúðalánasjóði bara upp á verðtryggð lán.

Ég spyr hæstv. forsætisráðherra: Hvernig í ósköpunum er hægt að standa svona að því að efna kosningaloforð? Ekki bara að það sé ekki efnt. Ekki er það bara þannig að ekki takist að efna það nema að hluta eða alls ekki, heldur er þróunin í þveröfuga átt. Vægi verðtryggingar í útlánum bankakerfisins, m.a. í ríkisbankanum, eykst í valdatíð Framsóknarflokksins og Íbúðalánasjóður býður bara upp á verðtryggð lán. Það er eðlilegt að almenningur spyrji: Hvað er orðið af afnámi verðtryggingar, einu helsta kosningaloforði forsætisráðherra og Framsóknarflokksins?

Þetta er sérstaklega brýnt núna af tveimur ástæðum. Önnur er sú að eftir viku á að leiðrétta heildarskuldir heimilanna um liðlega 1% á ári næstu fjögur árin eða um 80 milljarða. Það er öllum ljóst að ef heimilin eru áfram í spennitreyju verðtryggingarinnar getur þenslan sem aðgerðunum fylgir auðveldlega étið upp niðurfærsluna á aðeins örfáum árum.

Hin ástæðan er sú að menn ræða nú um afnám gjaldeyrishafta. Ég spyr hæstv. forsætisráðherra hvort til greina komi að ráðast í afnám hafta með heimilin í landinu í spennitreyju verðtryggingarinnar þannig að þau geti átt það á hættu eða yfir höfði sér að verðbólguskellur, sem gæti fylgt svo mikilli óvissu í efnahagsmálum, kæmi af fullum þunga á skuldir heimilanna. (Forseti hringir.) Ég bið forsætisráðherra um að taka af tvímæli um þetta af því (Forseti hringir.) að fólk hefur áhyggjur af þessu.