afnám verðtryggingar.
Virðulegur forseti. Ástæðan fyrir því að eftirspurn eftir verðtryggðum lánum hefur aukist aftur til mikilla muna er sú að þessari ríkisstjórn hefur tekist það sem ekki hefur tekist í meira en áratug þangað til nú að ná tökum á verðbólgunni. Verðbólga hefur verið með allra lægsta móti síðustu missiri. Þar af leiðandi sér fólk sér hag í því að taka verðtryggð lán við þær aðstæður.
Hins vegar er mjög mikilvægt að menn nýti þær aðstæður til að komast út úr þessu verðtryggða kerfi. Menn mega ekki trúa því að staðan verði alltaf þessi. Menn mega t.d. ekki gera ráð fyrir því að þessi ríkisstjórn verði við völd óendanlega og geti haldið verðbólgunni niðri óendanlega. [Frammíköll í þingsal.] Það getur brugðið til beggja vona hvað það varðar, einhvern tíma í framtíðinni, virðulegur forseti. Þess vegna þurfum við að hugsa til langrar framtíðar þegar kemur að því að vinna okkur út úr verðtryggðu kerfi.
Aftur á móti eru áhyggjur hv. þingmanns af því að þensla muni leiða af skuldaleiðréttingunni á engum rökum reistar, eins og komið hefur fram í útreikningum sem kynntir voru samhliða því að aðgerðirnar voru kynntar í upphafi. Og jafnvel þó að einhvern tíma í framtíðinni yrði aftur veruleg verðbólga og hún hefði áhrif á lánin breytir það ekki því að leiðréttingin heldur sér, vegna þess að þá er leiðréttingin nefnilega verðtryggð líka. Þessu virðist hv. þingmaður ekki hafa gert sér grein fyrir ef hann heldur að verðbólga geti étið upp leiðréttinguna. Það er alls ekki svo. Ef verðbólgan færi aftur af stað er þeim mun mikilvægara að ráðist hafi verið í leiðréttingu lánanna.
Hvað varðar afnám hafta þá er það algjörlega á hreinu, eins og hv. þingmaður ætti að vita, að ríkisstjórnin mun ekki ráðast í afnám þeirra á þann hátt að það geti ógnað heimilunum í landinu.