raforkuverð til garðyrkjubænda.
Hæstv. forseti. Ég þakka málshefjanda þessa fyrirspurn. Þetta er mál sem hefur legið svolítið þungt á okkur þingmönnum Suðurkjördæmis. Mekka garðyrkjunnar á Íslandi er þar. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin.
Mig langar að koma á framfæri að við sátum fund með garðyrkjubændum í kosningabaráttunni fyrir síðustu kosningar í Aratungu, en boðað var til fundarins af þeirra hálfu og var þetta virkilega skemmtilegur og góður fundur. Þar kom meðal annars fram að þeir hafa verið að berjast fyrir lækkuðu raforkuverði í 30 ár en ekkert hefur gengið, þeir hafa meira að segja dubbað þingmenn upp sem framkvæmdastjóra garðyrkjunnar og ekkert gengið. Á fundinum kom fram í máli hæstv. iðnaðarráðherra, Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, að það væri aðeins spurning um pólitískan vilja að laga þetta. Eins kom fram í máli núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að í rauninni þyrfti eitt pennastrik til að laga þetta. Ég er að velta fyrir mér: Hvar er þetta pennastrik? (Gripið fram í.)Hvar er þetta pennastrik? Það er náttúrlega eins með þetta og margt annað hjá þessari ríkisstjórn að „strax“ er teygjanlegt hugtak, við höfum komist að því.