144. löggjafarþing — 26. fundur,  3. nóv. 2014.

rekstur Hlíðarskóla.

224. mál
[18:57]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Frú forseti. Ég þakka líka fyrir þessa umræðu og tek svo sem undir það með hæstv. ráðherra að þetta sé að stórum hluta velferðarmál. Þar sem þjónustan er frekar bágborin í Norðausturkjördæmi er kemur að þessum málum, vegna þroskaskerðinga og geðfötlunar, hegðunarraskana og úrræða sem því tengjast, er afar mikilvægt að þetta úrræði verði til staðar.

Ég velti fyrir mér í ljósi þess að taka á þetta enn og aftur af safnliðnum hjá menntamálaráðuneytinu — það er kannski eins og hér hefur komið fram ákveðin viðurkenning á því að þrátt fyrir að ráðherra hafi hér sagt að hér sé um grunnskólarekstur að ræða, sem þetta vissulega er, og á vegum sveitarfélagsins þá er þetta auðvitað úrræði. Ég velti fyrir mér hvort það verði ekki gerður tvöfaldur samningur eins og Akureyrarbær er að ræða um, þ.e. bæði af hálfu menntamálaráðuneytisins og velferðarráðuneytisins vegna þessa úrræðis. Þetta úrræði nýtist miklu fleirum en bara akureyskum börnum.