Háskóli Íslands og innritunargjöld.
Virðulegi forseti. Ég hyggst hlífa hv. þingmanni við því að fara yfir það sem ég hef þó gert hér í nokkur skipti í ræðustól Alþingis, þ.e. hvernig farið er með skráningargjöldin og samhengi þeirra við heildarfjármagnið sem rennur til skólans. Ég vísa hv. þingmanni á þingskjöl þar sem er farið yfir þetta með nokkuð skýrum hætti að ég tel.
Hvað varðar samdrátt til skólans, sem hv. þingmaður talar um, þá vil ég ítreka að Háskóli Íslands fékk á sig sambærilega hagræðingarkröfu og aðrir háskólar og leiddi það til niðurskurðar upp á 152,8 milljónir. Á sama tíma var ákveðið að hækka framlög til Háskóla Íslands til þess að styðja við reikniflokkana um 302,4 milljónir. Á þessum tveimur tölum er nokkur munur og má þar lesa nokkuð um heildarfjármagnið sem rennur til háskólans.
Virðulegi forseti. Við getum aftur á móti verið sammála um það, ég og hv. þingmaður, að staða okkar í menntamálum á æðsta stigi, þ.e. háskólastiginu, er umhugsunarverð. Það er umhugsunarvert að meðalaldur þeirra sem ljúka BA- og BS-gráðu við Háskóla Íslands er einn sá hæsti sem þekkist í OECD-löndum og er núna rétt rúm 30 ár. Meðalaldur þeirra sem skrá sig sem nýnema í Háskóla Íslands og í háskólakerfinu er einnig sá allra hæsti sem þekkist, þ.e. 26 ár.
Þegar horft er til þróunar undanfarinna ára held ég aftur á móti að við séum ekki alveg sammála, ég og hv. þingmaður, um þær áherslur sem síðasta ríkisstjórn hafði varðandi háskólana og fjármagn sem rann til þeirra í hlutfalli við fjölgun nemenda. En við getum alveg örugglega verið sammála um það, ég og fyrrverandi hæstv. ráðherra og hv. þingmaður nú, að þarna þarf að gera betur. Það þarf að horfa til þess að fjárframlög til háskóla á Íslandi eru of lág í alþjóðlegum samanburði og við þurfum að bæta þar við. (Forseti hringir.) Þess vegna, virðulegi forseti, skiptir máli að settar voru 302 milljónir kr. inn (Forseti hringir.) í háskólann til að hækka þar reikniflokkana.