144. löggjafarþing — 27. fundur,  4. nóv. 2014.

störf þingsins.

[13:45]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf):

Herra forseti. Alþingi hefur góðu heilli fjallað nokkuð um þá möguleika sem felast í því að selja um sæstreng raforku til útlanda. Það er hins vegar allsendis óvíst hvort sú framkvæmd hentar Íslendingum. Fyrst þarf að kanna marga þætti. Þess vegna fól atvinnuveganefnd þingsins hæstv. iðnaðarráðherra það í febrúar sl. að vinna sex tölusett verk. Ég spurðist fyrir um það með sérstakri fyrirspurn hvernig því verki yndi fram. Svarið barst mér í gær. Það kom í ljós að eftir níu mánuði er hæstv. ráðherra ekki búinn að setja á stofn einn einasta starfshóp. Hún er ekki einu sinni búin að setja upp verkefnisstjórn. Það er eitt stórt núll hjá henni í þessum efnum.

Þessi framkvæmd kann að verða álitleg fyrir Íslendinga vegna þess að Bretar hafa sett sérstök lög sem gera mönnum kleift að gera mjög langa samninga um hátt lágmarksverð. Það fjarlægir áhættu þeirra sem mundu ráðast í að leggja slíkan streng. Þess vegna var það niðurstaða ráðgjafarnefndar sjálfs ráðherrans og skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands að það þyrfti hið bráðasta að ráðast í könnunarviðræður við Breta til að kanna hvort Íslendingar gætu notið slíkra ívilnana alveg eins og Frakkar, Svíar og Norðmenn.

Svo var það upplýst um helgina, herra forseti, eftir að Ketill Sigurjónsson orkubloggari lagði fram tölvupósta sem hann hafði fengið afhenta í krafti breskra upplýsingalaga að hæstv. ráðherra hefur hafnað því að koma til fundar um slíkt. Þetta er alvarlegt í ljósi þess að það liggur fyrir að þessi gluggi verður ekki opinn endalaust. Það er einungis tiltekin upphæð sem Bretar verja til þess að taka þessa áhættu á sig. Þess vegna kann svo að fara að sleifarlag hæstv. ráðherra og léleg vinnubrögð verði til þess að þetta tækifæri sem Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, sagði að kynni að vera mesta viðskiptatækifæri Íslendinga á þessari öld fari út um gluggann.

Ég fordæmi þessi vinnubrögð af hálfu hæstv. ráðherra.