störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég velti fyrir mér í þessari umræðu hvers vegna er svona erfitt að segja: Við höfum ekki staðið okkur nógu vel, við þurfum að standa okkur betur. Hvers vegna eru menn að velta fyrir sér með svona margvíslegum og ólíkum hætti hvað mótmælendur í gær hafi verið að biðja um eða fara fram á? Fyrir mér er það alveg skýrt. Voru þeir ekki að óska eftir betri stjórnmálum, vandaðri vinnubrögðum?
Hvers vegna má ekki segja við mótmælendur: Ég heyri hvað þú ert að segja, skoðun þín skiptir máli, ég ætla að reyna að gera betur en ég hef gert hingað til? Eru það ekki eðlileg viðbrögð við mótmælum þúsunda manna á Austurvelli við stjórnmálaástandið? Þurfa menn að fara í upptalningu á hagtölum til að útskýra fyrir fólki að það sé ekki í raun og veru að upplifa það sem það telur sig vera að upplifa, að allar hagtölur bendi til þess að það hafi það bara gott?
Við verðum að temja okkur það í þessum sal og í stjórnmálunum, til þess að eitthvað batni, að hlusta á fólk. Í mínum flokki, sem heitir Björt framtíð, höfum við tileinkað okkur hugmyndafræði sem gengur undir nafninu „þjónandi forusta“. Stór hluti af henni felst í því að hlusta á fólk, hlusta á hvert annað. Stundum þarf ekki að gera neitt meira en það, heyra hvað fólk er að segja og segja: Við höfum ekki staðið okkur nógu vel, við ætlum að reyna að gera betur.
Af hverju er það svona erfitt? Af hverju þurfa menn að fara að rífast við þá sem lýsa skoðunum sínum á Austurvelli? Hættum því.