störf þingsins.
Hæstv. forseti. Síðastliðinn föstudag voru 150 ár liðin frá því að Einar Benediktsson skáld fæddist. Þá var ekki þingfundur á Alþingi þannig að ekki var hægt að minnast þessa þá.
Ég vil byrja á að lýsa ánægju minni með þá ákvörðun menntamálaráðherra að útnefna fæðingardag skáldsins sem dag ljóðsins. Um það voru reyndar skiptar skoðanir, þar á meðal lét einn bókaútgefandi þess getið að engin eftirspurn væri eftir stórskáldinu en hann var væntanlega ekki viðstaddur á mánudaginn þegar fullt var út úr dyrum í Hörpu. Ég komst því miður ekki vegna skyldustarfa hér en þar var fullt út úr dyrum og nóg eftirspurn eftir stórskáldinu.
Það er líka út af öðru sem ég vil nota tækifærið til að minnast þessa afmælis og það er að flytja tillögu, sem ég hyggst gera innan skamms, sem mun valda útgjöldum úr ríkissjóði og varðar uppbyggingu þjóðargrafreitsins á Þingvöllum sem er satt að segja til hreinnar skammar. [Hlátur í þingsal.] — Ég heyri að þetta hlægir þingmenn, það er nú gott. — Þar eru tvær steinhellur liggjandi í grasi, varla hægt að lesa nöfn þeirra stórskálda sem þar liggja og mér finnst þetta okkur til minnkunar, herra forseti. Þarna eigum við að setja upp almennilega minnisvarða og þarna eigum við að setja upp brot úr ljóðum þessara skálda, bæði á íslensku og ensku, og við eigum að hafa sýnileg brot úr þeirra verkum þarna svo að við og gestir okkar geti notið. (SJS: Farðu nú með eitthvað eftir Einar.) — Já. Með leyfi forseta vil ég gjarnan fara hérna með smábrot úr [Hlátur í þingsal.] kvæðinu Móðir mín.
(Forseti (EKG): Það leyfi er góðfúslega veitt.)
Það er vegna áskorunar úr sal. [Hlátur í þingsal.]
Hér segir, með leyfi forseta:
Við spor hvert um Bifröst, að Heljar hyl,
til himins vor tunga hjó vörðu.
Þú last — þetta mál með unað og yl
yngdan af stofnunum hörðu.
— Ég skildi, að orð er á Íslandi til
um allt sem er hugsað á jörðu.
Og aðeins til viðbótar, lokaerindið:
Dagar þíns lífs, þínar sögur, þín svör,
voru sjóir með hrynjandi trafi.
Móðir. Nú ber ég þitt mál á vör
og merki þér ljóðastafi.
Til þess tók ég fari, til þess flaut minn knör.
Til þess er ég kominn af hafi.