störf þingsins.
Virðulegi forseti. Á dögunum var innanríkisráðuneytið tekið í sundur undir mikilli pólitískri pressu og dómsmálin flutt í skúffu til forsætisráðherra en það var bráðabirgðaráðstöfun, sögðu einhverjir, enda ber staðan keim af því þar sem hvert klúðrið hefur rekið annað sem afleiðing þessa ráðslags.
Byssumálið svokallaða er ágætisdæmi um þetta þar sem menn hafa keppst við að skýra stöðuna til skiptis, ríkislögreglustjóri og forstjóri Landhelgisgæslunnar, engin pólitísk forusta er í málinu, engir ráðherrar sem taka utan um það. Fjarvera þeirra beggja er mjög áberandi í málinu, dómsmálaráðherrans og innanríkisráðherrans, en í viðtali við Ríkisútvarpið í gær segir forstjóri Landhelgisgæslunnar, með leyfi forseta:
„Við erum þiggjendur í þessu samstarfi og það eru Norðmenn sem útbúa skjölin, það eru þeir sem ákveða á hvaða formi það skuli vera, þessi skjöl voru og eru NATO-trúnaðarskjöl.“
Málin eru auðvitað til umfjöllunar í nefndum þingsins og er það vel þó að ég sakni framkvæmdarvaldsins í þessu líka. Þessi umræða hefur verið ítrekuð, þ.e. tilvísun í NATO-trúnaðarskjöl, og því hef ég ákveðið að leggja fram skriflega fyrirspurn þess efnis. Ég hef ekki enn komist að niðurstöðu um til hvaða ráðherra sú fyrirspurn á að fara:
1. Hver ákveður hvaða skjöl eru NATO-trúnaðarskjöl?
2. Hversu mikið er um slík skjöl í kerfinu?
3. Hverjir fá aðgang að slíkum skjölum?
4. Hvar eru þessi skjöl geymd?
5. Hvenær er trúnaði aflétt af NATO-trúnaðarskjölum?
6. Hvar eru þau geymd eftir að trúnaði er aflétt af þeim?
Þetta er nokkuð sem þingið þarf að vita. (Gripið fram í: … núna.)