störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég hef miklar áhyggjur af þeirri óvissu sem er um Reykjavíkurflugvöll. Á fundi í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur í morgun var samþykkt breytt deiliskipulag fyrir byggð á Hlíðarendasvæðinu. Þar er verið að fjölga íbúðum úr 360 í 600, mest með hækkun húsa. Þetta var gert undir hörðum mótmælum bæði fulltrúa sjálfstæðismanna og framsóknarmanna. Þetta þýðir að öryggisbrautinni á Reykjavíkurflugvelli verður lokað, braut 06/24, og það hefur áður komið fram að Dagur B. Eggertsson hefur úthlutað því stæði sem er undir Fluggarða til Háskóla Íslands.
Það var um það sátt sem meðal annars birtist í orðum hæstv. innanríkisráðherra þegar hún sagði að ekki yrðu teknar stefnumótandi ákvarðanir sem mundu hafa áhrif á framtíð Reykjavíkurflugvallar á meðan Rögnunefndin væri að störfum. Það hefur komið fram hjá formanni nefndarinnar að þau óska eftir svigrúmi. Það hefur reyndar komið fram hjá þremur af fjórum fulltrúum í þessari nefnd, öllum nema Degi B. Eggertssyni borgarstjóra.
Icelandair segir í bókun um þetta að það sé óviðunandi afkastageta og áreiðanleiki flugvallarins sé skertur með óafturkræfum hætti. Það sama á við um Fluggarða.
Ég minni á þær kosningar sem voru haldnar að frumkvæði þeirra sem fara fram undir merkjunum „Hjartað í Vatnsmýrinni“. Það voru 69 þús. undirskriftir. Þessir flokkar tala oft mjög hátt um að það þurfi að efla íbúalýðræði, þeir vilji taka mark á umbjóðendum sínum. 71,2% Reykvíkingar lýstu sig fylgjandi flugvellinum í því, 45% af kjósendum Samfylkingarinnar, 62% af kjósendum Bjartrar framtíðar.
Ég held, virðulegi forseti, að það verði að fara að skerða skipulagsvald Reykjavíkurborgar á þessu flugvallarstæði. Við verðum að grípa inn í ef við ætlum ekki að sitja uppi með það að einn daginn verði umræðan ekki um það hvort völlurinn eigi að vera í Reykjavík eða ekki, heldur hvenær starfsemin flytur suður eftir.
Á sameiginlegum opnum fundi atvinnuveganefndar (Forseti hringir.) og samgöngunefndar þingsins í fyrramálið (Forseti hringir.) verða aðilar til að ræða þessi mál við okkur.