um fundarstjórn.
Hæstv. forseti. Ég neyðist til að kveðja mér hljóðs undir liðnum um fundarstjórn forseta til að leiðrétta rangfærslu sem formaður umhverfis- og samgöngunefndar, Höskuldur Þórhallsson, fór með áðan í upplýsingum um það mál sem hér er verið að ræða.
Fyrir það fyrsta, ef það er rétt að þessari samþykkt, (Gripið fram í.) ef þessari samþykkt —
(Forseti (EKG): Hv. þingmaður. Það er ekki ætlunin að framlengja þessa umræðu þannig að ég bið hv. þingmann að gæta sín, a.m.k. að það sem hv. þingmaður ætlar að segja sé fullkomlega í samræmi við þingsköp.)
Já, ég ætla bara að koma því á framfæri að það er rangt sem hér var sagt. Grundvallaratriðið með Rögnunefnd, sem ég ber mikla virðingu fyrir og met hennar störf og tel að hún eigi að fá að vinna í friði, er að henni var ekki falið að fjalla um svokallaða neyðarbraut 06/24 vegna þess að Sturla Böðvarsson, þáverandi samgönguráðherra, (Forseti hringir.) skrifaði undir samkomulag um (Forseti hringir.) að þessa braut skyldi leggja af. (Forseti hringir.) (Gripið fram í.) Mér er kunnugt um að núverandi hæstv. innanríkisráðherra er sama sinnis.