144. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2014.

um fundarstjórn.

[15:43]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti áréttar að hvorki er ætlunin að framlengja umræður um þetta dagskrármál, störf þingsins, né önnur sambærileg dagskrármál með því að hefja umræður um fundarstjórn forseta. Hann áréttar það gagnvart þeim hv. þingmönnum sem taka til máls nú í framhaldinu. (Gripið fram í.)