orð formanns umhverfis- og samgöngunefndar.
Virðulegi forseti. Ég kann hálfilla við að sitja undir því þegar þingmenn tala um málefni Reykjavíkurflugvallar sem prívatmál mín og hv. þm. Höskuldar Þórhallssonar, að við séum að nota hér einhvern vettvang, störf þingsins, til að ræða eitthvað sem sé okkar prívatmál.
Ég fór yfir þá skoðanakönnun sem ég vitnaði til og ég held með tilliti til þeirra brýnu þjóðhagslegu hagsmuna sem eru í þessu máli sé mikilvægt að við tökum þessi mál strax á dagskrá þingsins, helst í dag, að hér verði tekin ákveðin og almenn umræða um þessi mál þannig að okkur gefist tækifæri til að tjá hug okkar um þau.
Það er ekki prívatmál mitt eða hv. þm. Höskuldar Þórhallssonar, þjóðhagslegir hagsmunir liggja hér undir og það miklir. Skoðun þjóðarinnar er mjög skýr í þessu máli.