144. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2014.

hjúkrunarheimilið Eyri á Ísafirði.

[10:56]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Framkvæmdir við hjúkrunarheimilið Eyri á Ísafirði sem hófust á síðasta kjörtímabili hafa gengið eftir áætlun og gert er ráð fyrir að íbúðirnar verði tilbúnar til afhendingar 1. júní á næsta ári. Þá er gert ráð fyrir að rekstraraðilar taki við og stefnt er að því að fyrstu íbúarnir geti flutt inn 1. ágúst á næsta ári.

En ekkert fjármagn er til reksturs hjúkrunarheimilisins Eyrar á Ísafirði í fjárlögum næsta árs. Fyrir liggur undirritaður samningur á milli heilbrigðisráðuneytisins og Ísafjarðarbæjar um leigu ríkisins á húsnæðinu. Ekki er enn búið að semja um rekstur hjúkrunarheimilisins en samningurinn verður á milli heilbrigðisráðuneytisins og Ísafjarðarbæjar. Fleiri hjúkrunarheimili eru samningslaus eins og til dæmis í Reykjanesbæ og Garðabæ.

Misvísandi skilaboð hafa verið frá velferðarráðuneytinu og frá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Þær upplýsingar hafa komið fram frá velferðarráðuneytinu að Eyri á Ísafirði komi til með að leysa af hólmi rými á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða en samningar séu ekki komnir langt á veg. Þær upplýsingar hafa komið frá framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða að reksturinn á næsta ári sé óbreyttur. Hann segir að ráðuneytið og Ísafjarðarbær verði fyrst að semja sín á milli um rekstur hjúkrunarheimilisins áður en Heilbrigðisstofnunin komi að málunum.

Á sjúkrahúsinu á Ísafirði eru 19 hjúkrunarrými en á Eyri verða 30 hjúkrunarrými svo þarna munar 11 hjúkrunarrýmum.

Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra hvar þessi mál standa og hvort hann hyggist tryggja fjármagn til reksturs á hjúkrunarheimilinu Eyri svo hægt sé að standa við það að íbúar geti flutt þar inn 1. ágúst á næsta ári.