144. löggjafarþing — 30. fundur,  11. nóv. 2014.

fjáraukalög 2014.

367. mál
[15:05]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Í heildarsamhengi hlutanna held ég að frávikin sem hv. þingmaður er að vísa hér til séu smávægileg. Ég hygg að það sé ekki mikill munur þegar horft er á heildarframlag ríkisins í þessu efni eftir því nákvæmlega hvernig framlögin eru tímasett. Hins vegar er ljóst að það mun sparast margra milljarða vaxtakostnaður sem ella hefði farið beint úr ríkissjóði til fjármálastofnananna og orðið þar eftir án þess að það hefði komið heimilunum til góða.

Ég lít ekki þannig á að ríkið sé með þessu að taka enn meiri ábyrgð á málinu. Það er eftir sem áður þannig að það mun þurfa sérstakar fjárheimildir á fjárlögum til að klára endanlegt uppgjör á fjárlögum næsta árs og á árinu 2016, og án slíkra framlaga mun ekki koma til endanlegs uppgjörs á skuldaniðurfærslunum.

Ég trúi því hins vegar að það verði vel rúmlega svigrúm til þess að klára þessa áætlun (Forseti hringir.) og vek athygli á því að með því að flýta aðgerðinni núna (Forseti hringir.) batnar heildarafkoma ríkissjóðs á árinu 2017 um heila 20 milljarða.