144. löggjafarþing — 30. fundur,  11. nóv. 2014.

fjáraukalög 2014.

367. mál
[15:06]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil fara yfir nokkur atriði við 1. umr. þessa frumvarps. Það er að vísu búið að boða að á því verði nokkrar breytingar og allt í lagi með það, en það eru þó nokkur atriði hérna sem ég vil ræða við þessa umræðu en síðan mun auðvitað hv. fjárlaganefnd fara vel yfir þetta allt saman.

Í fyrsta lagi vil ég nefna það sem stendur um stöðuna og batann. Í texta með frumvarpinu stendur, með leyfi forseta:

„Þennan mikla bata í afkomunni á yfirstandandi ári má að mestu leyti rekja til óreglulegra tekjufærslna sem samtals er áætlað að nemi 48,3 milljörðum kr. Þar af eru 19,5 milljarðar kr. vegna arðgreiðslna frá viðskiptabönkum og Seðlabankanum umfram forsendur fjárlaga og 26 milljarða kr. einskiptistekjufærsla vegna áformaðrar lækkunar á skuldabréfi ríkissjóðs við Seðlabankann sem er gert ráð fyrir að muni færast sem sérstök arðgreiðsla á tekjuhlið ríkissjóðs en á móti komi jafn mikil afborgun inn á skuldina.“

Það er þetta tvennt sem ég vil aðeins staldra við í byrjun. Í fyrsta lagi eru arðgreiðslurnar. Ég er mjög undrandi yfir því að ekki hafi verið hægt að áætla þær. Við gerðum athugasemdir við það í minni hlutanum þegar fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2014 kom fram að gert væri ráð fyrir að arðgreiðslur lækkuðu mjög mikið á milli ára og fórum yfir það og spurðum Bankasýsluna meðal annars út í það mál. Síðan líður tíminn og fjárlögin eru samþykkt í desember. Örfáum vikum seinna kemur í ljós að arðgreiðslurnar verða mun meiri en gert var ráð fyrir í fjárlögum 2014. Ég hlýt að spyrja um áætlanagerð. Nú eru arðgreiðslur ekki eitthvað sem gerist í nútímanum heldur það sem hefur verið að gerast undanfarið ár og stundum undanfarin ár. Það er þá bati undanfarinna ára sem býr til arðgreiðslurnar í ár. Ég get ekki fallist á að það hafi verið ófyrirséð að arðgreiðslurnar hafi hækkað með þessum hætti. Við töluðum um það hér áður en fjárlögin voru samþykkt að það væri eitthvað bogið við þessa áætlanagerð. Í lok ársins hlýtur að hafa mátt sjá að þarna yrði upphæðin hærri en gert var ráð fyrir í frumvarpinu.

Ég geri því alvarlegar athugasemdir við áætlanagerð af þessu tagi. Hún gerir okkur í hv. fjárlaganefnd erfitt fyrir að hafa eftirlit með hlutunum og sjá hvernig málin leggjast.

Hitt er 26 milljarðarnir sem er tekjufærsla vegna skuldabréfs ríkissjóðs við Seðlabankann. Gert var ráð fyrir því í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2014 og í fjárlögum að þarna yrðu 10 milljarða tekjur vegna þess að breyta átti bréfinu og það átti að verða vaxtalaust, ef ég man rétt. Greinilega hefur eitthvað gengið á á milli fjármálaráðuneytisins og Seðlabankans því að þetta gekk ekki eftir. Ég átti erfitt með að skilja þessa bókfærsluaðgerð og spurði meðal annars hæstv. ráðherra út í hana á sínum tíma.

Ég vil, virðulegi forseti, fá að vitna hér í og lesa texta í fjáraukalagafrumvarpinu sem er svona:

„Þannig hefur verið endursamið um skilmála skuldabréfs sem ríkissjóður gaf út til styrkingar á eigin fé Seðlabanka Íslands vegna taps á veðlánum í kjölfar falls bankakerfisins haustið 2008.“ — Þarna er verið að fjalla um þessa 26 milljarða sem ég nefndi hér áðan. — „Bréfið verður ekki vaxtalaust eins og gert var ráð fyrir í forsendum fjárlaga“ — það var sem sagt gert ráð fyrir að það yrði vaxtalaust og þá kæmu 10 milljarða tekjur — „heldur mun það bera óverðtryggða vexti og hefur það í för með sér veruleg aukin vaxtagjöld ríkissjóðs frá því sem ráðgert var í fjárlögum. Á móti vegur að með áformuðum breytingum á viðmiðum um eigið fé, arðgreiðslur og innkallanlegt eigið fé Seðlabankans gefst svigrúm til að lækka höfuðstól skuldabréfsins um 26 milljarða kr.“ — Þarna eru áform um breytingar á viðmiðum um eigið fé. — „Sú afborgun kemur ekki fram á gjaldahlið ríkissjóðs í rekstrarreikningi heldur í gegnum sjóðstreymið og veita þessar auknu tekjur því ekki svigrúm fyrir samsvarandi útgjöld eða hafa áhrif til að auka handbært fé ríkissjóðs.“

Virðulegi forseti. Mér fannst þetta svolítið flókið og finnst mikilvægt að við skiljum þennan gjörning og áttum okkur á því hvað hann þýðir. Fjárlaganefnd bað því Ríkisendurskoðun að fara í gegnum þetta, athuga hvort þarna væri eitthvað á ferðinni sem væri ekki í lagi og útskýra hreinlega fyrir nefndarmönnum út á hvað þetta gengur.

Mig langar að grípa niður í bréf Ríkisendurskoðunar til upplýsinga því að ég veit að það átta sig ekki allir á þessum gjörningi. Ríkisendurskoðun segir, með leyfi forseta:

„Tilgangur yfirtöku ríkissjóðs á kröfum Seðlabankans var að bæta eiginfjárstöðu bankans sem hefði orðið mjög neikvæð ef allt tapið hefði verið gjaldfært hjá honum. Með því að ríkissjóður greiddi mun hærra verð fyrir kröfurnar en nam áætluðu verðmæti þeirra og gjaldfærði það tap hjá sér var hægt að viðhalda eiginfjárstöðu Seðlabankans. Þannig má segja að yfirverðið sem ríkissjóður greiddi hafi verið eiginfjárframlag hans til bankans. Ríkissjóður greiddi fyrir kröfurnar með skuldabréfi sem var verðtryggt og með 25% vöxtum. Vextir af bréfinu skyldu greiðast ársfjórðungslega en höfuðstóllinn í einu lagi í lok lánstímans þann 1. janúar árið 2014.“

Svo segir í bréfi Ríkisendurskoðunar að í árslok 2013 hafi þessi skuld ríkissjóðs við Seðlabankann staðið í rúmum 170 milljörðum kr. Undanfarin missiri hafi tvö mál verið til umræðu á milli ríkissjóðs og Seðlabankans sem hafa þýðingu fyrir uppgjör á skuldabréfinu. Annars vegar hafi verið rætt um skilmálabreytingu á kröfum skuldabréfsins sem felist í að lengja lánstímann og breyta bréfinu úr verðtryggðu bréfi í óverðtryggt og hins vegar að festa í lög ákvæði um hvernig ákvarða skuli eiginfjárstöðu Seðlabankans og haga arðgreiðslum frá honum í ríkissjóð.

Í desember 2013 sömdu Seðlabankinn og ríkissjóður um að lengja gjaldfrest skuldabréfsins til 1. janúar 2015 og í mars á þessu ári var aftur samið um að bréfið bæri breytilega vexti í stað verðtryggingar og fastra vaxta. Vextir eru til að byrja með 5%, en þeir fylgja vöxtum á reikningum fjármálafyrirtækja í Seðlabankanum. Einnig eru ákvæði um að ríkissjóður hafi heimild til þess að greiða aukaafborganir eða alla skuldina án sérstaks uppgreiðslugjalds. Viðræður standa yfir um frekari breytingar á skilmálum skuldabréfsins í þá veru að bréfið verði til 29 ára og með reglulegum afborgunum.

Á vorþingi 2014 var lagt fram frumvarp til laga um breytingar á lögum um Seðlabankann að því er varðar eiginfjárviðmið og ráðstöfun hagnaðar. Í frumvarpinu er lagt til að arðgreiðslur bankans í ríkissjóði byggi á tiltekinni eiginfjárreglu og árlegu mati á eiginfjárþörf bankans. Hvort og að hve miklu leyti hagnaður verður greiddur í ríkissjóð eða ráðstafað til að styrkja eigið fé bankans ræðst af þessu. Þá er í frumvarpinu ákvæði um að ríkissjóður skuldbindi sig til að hækka stofnfé sitt í bankanum ef fyrirsjáanlegt er að eigið fé hans dugi ekki til þess að mæta lágmarks eiginfjárkröfu. Það er rétt að taka fram að ríkissjóður er vegna eignarhalds síns á bankanum eftir sem áður ábyrgur fyrir öllum skuldbindingum hans.

Í umsögn fjármálaráðuneytisins um fjárhagsleg áhrif frumvarpsins á ríkissjóð kemur fram að ákvæðin þýði að hægt verði að lækka stöðu innborgaðs eigin fjár í bankanum um 26 milljarða kr., en það mat mun vera byggt á útreikningum Seðlabankans. Að sögn ráðuneytisins er ætlunin að verja þessum fjármunum til að greiða niður ofangreind skuldabréf sem ríkissjóður gaf út til þess að styrkja eiginfjárstöðu Seðlabankans. Möguleikar Seðlabankans til þess að greiða arð í ríkissjóð fara eftir gildandi lögum um bankann á hverjum tíma og stöðu óráðstafaðs eigin fjár. Núverandi ákvæði um arðgreiðslur eru í 34. gr. laga um bankann, en þar kemur fram að árlega skuli greiða í ríkissjóð 2/3 af hagnaði bankans á liðnu reikningsári, en þriðjung hagnaðar ef eigið fé bankans í lok reikningsárs svarar ekki að lágmarki 2,25% af fjárhæð útlána og innlendrar verðbréfaeignar lánakerfisins í lok reikningsársins á undan.

Ljóst er að ef greiða á meiri arð en þessu nemur þarf að breyta ofangreindu lagaákvæði og að áform um að lækka eigið fé Seðlabankans um 26 milljarða greiðslu í ríkissjóð er háð því að lögum um bankann verði breytt. Þessum lögum hefur ekki verið breytt, mér vitanlega, og þeim þarf þá væntanlega að breyta áður en við samþykkjum fjáraukalögin. Nú þekki ég ekki hver staðan á þessu máli er, en það þarf alla vega að breyta lögum til að hægt verði að framkvæma það sem lagt er til í þessum fjáraukalögum.

Síðan segir Ríkisendurskoðun að ekki liggi fyrir hver rekstrarniðurstaða bankans verði á árinu 2014 og þar með eiginfjárstaða hans í árslok 2014. Miðað við stöðuna í árslok 2013 mundi 26 milljarða kr. lækkun á eigin fé bankans hins vegar þýða að eigið fé hans færi niður í 64 milljarða kr. Í ríkisreikningi er ekki hægt að færa eignarhlut í ríkisaðilum á hærra verði en nemur bókfærðu eigin fé þeirra og því mundi að óbreyttu þurfa að færa niður eignarhlut ríkissjóðs í Seðlabankanum um 13,5 milljarða kr. samhliða arðgreiðslu af þessu tagi og gjaldfæra þá fjárhæð í ríkisreikningi.

Virðulegur forseti. Ég vildi bara fara yfir þetta hér vegna þess að ég veit að margir velta þessu fyrir sér.

Ég nefndi áðan í andsvörum við hæstv. ráðherra samning við sérgreinalækna. Hæstv. ráðherra sagði, og var ánægður með það, að þetta uppsetta verð sem sérgreinalæknar lögðu á sjúklinga sína yrði lægra á árinu 2014. Ég skildi hæstv. ráðherra svo að það mundi ekki hækka á árinu 2015 þó að það stæði hér skýrum stöfum í fjáraukalagafrumvarpinu að það væri einmitt gert ráð fyrir því að sjúklingar greiddu kostnaðinn vegna samningsins við sérgreinalækna á árinu 2015. Við skulum vona að hæstv. ráðherra hafi rétt fyrir sér.

Talandi um það sem er ófyrirséð eða fyrirséð í þessu fjárlagafrumvarpi. Í því er gert ráð fyrir að barnabætur skili afgangi í ríkissjóð upp á 300 millj. kr. Það var algerlega fyrir séð. Um það flutti ég breytingartillögu á skattalögum strax á vormánuðum. Ég sá þetta og þá hljóta aðrir að hafa séð það. En menn vildu ekki breyta skattalögum, þótti gott að fá 300 millj. kr. af barnafjölskyldum í landinu til þess að greiða önnur útgjöld. Þetta er eitt af þeim atriðum sem þarf að fara vel yfir í fjárlaganefndinni. Meiri hluti fjárlaganefndar hafði gert ráð fyrir niðurskurði akkúrat upp á 300 millj. kr. á milli umræða um fjárlagafrumvarp fyrir árið 2014. Því var mótmælt bæði í þessum þingsal og eins fyrir utan hann en það tókst að ná því hinum megin frá með því að breyta ekki viðmiðunartölum og byrja að skerða barnabætur við 200 þús. kr. markið og hækka ekki þær viðmiðunartölur miðað við launavísitölu. Þær viðmiðunartölur voru búnar til upp úr miðju ári 2012. Launavísitalan frá þeim tíma til dagsins í dag, ef ég hef reiknað rétt, hefur hækkað um 13%. Það er ekki sett inn þarna og þar með lækka barnabætur og skila í ríkissjóð afgangi þó að margar skýrslur sýni alvarlega stöðu barnafjölskyldna í landinu.

Ég nefndi hér í andsvari nýja verkefnið sem eru hafnarframkvæmdir á Bíldudal og mig langar í lokin að nefna lækkun á veiðigjaldi og hækkun á tryggingagjaldi. Þegar maður horfir á þetta sker það mjög í augu. Það sem er skynsamlegt að gera fyrir þjóð sem er svona rík að auðlindum er að taka beint gjald, láta útgerðina greiða fyrir sérleyfin í ríkissjóð með gjaldi. Það gjald hefur verið lækkað og er farið yfir það í texta með frumvarpinu hvernig á því stendur. Veiðigjaldið lækkar. Tryggingagjaldið hækkar hins vegar. Það sem væri skynsamlegt að gera væri að hækka veiðigjaldið en lækka tryggingagjaldið. Lækkun á tryggingagjaldi kemur öllum fyrirtækjum í landinu til góða en lækkun á veiðigjaldi gagnast aftur á móti afar (Forseti hringir.) vel útgerðinni sem aldrei hefur búið við betri rekstrarskilyrði en nú.