144. löggjafarþing — 31. fundur,  12. nóv. 2014.

störf þingsins.

[15:29]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Það er afskaplega mikilvægt að við ræðum heilbrigðismálin. Það er algjört forgangsmál. Einn þriðji af heilbrigðisþjónustu okkar er Landspítalinn sem er oft til umræðu. Ég verð að viðurkenna að mér finnst hv. stjórnarandstæðingar, sem studdu síðustu ríkisstjórn, taka ansi stórt upp í sig þegar þeir tala um framgang núverandi stjórnvalda.

Hvað settu núverandi stjórnvöld í forgang? Heilbrigðismál og Landspítalann? Nú snýst þetta ekki um það hvað mér finnst því að stefnumótun kemur fram í fjárlögum. Það getur hver sem er, ég hvet sérstaklega fjölmiðlamenn til að skoða það, skoðað fjárveitingar til spítalans. Þeir geta skoðað fjárveitingar til heilbrigðismála. Þeir geta borið saman framlög til einstakra stofnana og hvernig þau hafa aukist á síðasta kjörtímabili. Haldið þið að einhver geti komist að þeirri niðurstöðu að það hafi verið forgangsraðað í þágu Landspítalans? Nei, virðulegi forseti. Getur einhver komist að þeirri niðurstöðu að það sé forgangsmál þessarar ríkisstjórnar að setja framlög í heilbrigðismálin? Já, virðulegi forseti.

Tölurnar tala sínu máli. Ég hvet þá aðila — og ég vona að allir hafi áhuga á heilbrigðismálum, vegna þess að þau eru mál okkar allra — sem hafa áhuga á þessum málum að kynna sér fjárframlög síðustu ríkisstjórnar og þessarar ríkisstjórnar. Ég hvet þá til að skoða hvernig fjárlögunum var breytt eftir að þessi ríkisstjórn tók við.

Niðurstaðan er sú að þessi ríkisstjórn hefur forgangsraðað [Kliður í þingsal.] í þágu heilbrigðismála og það skiptir engu máli (Forseti hringir.) þó að hv. stjórnarandstaða byrji að gala úr þingsalnum, það breytir ekki tölunum í ríkisreikningnum. [Frammíköll í þingsal.]