fjarvera forsætisráðherra í umræðu um skuldaleiðréttingu.
Herra forseti. Það er aðall góðs forseta að hafa vilja og getu til að verja heiður og sóma Alþingis gagnvart framkvæmdarvaldi sem stundum er áreitið og hrokafullt. Það tel ég að þessi hæstv. forseti hafi sýnt að hann getur. Það gerði hann í gær, svo sannarlega. Ég tel að það hafi verið alveg hárrétt hjá honum að fresta fundi þegar kom í ljós að hæstv. forsætisráðherra var lagður á flótta út úr húsinu.
Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. forseta út í skýringu sem hann gaf hér áðan fyrir hönd hæstv. forsætisráðherra þegar hann sagði að hæstv. forsætisráðherra hefði þurft að fara á mikilvægan fund. Mig langar að spyrja hæstv. forseta: Er einhver fundur sem er það mikilvægur, umfram einhvers konar náttúruhamfarir þá eða fyrirvaralaus stórslys, sem geta réttlætt það að hæstv. forsætisráðherra fari af fundi sem hann á við Alþingi um mikilvægasta mál ríkisstjórnarinnar? Ég held að það sé ekki hægt.
Þetta sýndi hroka og lítilsvirðingu gagnvart þinginu sem enginn á að líða.