144. löggjafarþing — 32. fundur,  13. nóv. 2014.

afnám verðtryggingar.

[10:45]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Mig langar að beina fyrirspurn til hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra um fjármögnun vegna kaupa á nýju húsnæði. Hæstv. ráðherra hefur talað mjög ákveðið gegn verðtryggingunni síðan hún tók sæti á Alþingi og hefur sagt margt gott um það mál sem ég hef getað tekið undir. En ég deili ekki skoðun hennar og sýn á hversu auðvelt sé að afnema verðtryggingu og hversu auðvelt sé að breyta alfarið um lánaform þannig að við fyndum ekki fyrir högginu sem sveiflan á íslensku krónunni mundi valda. Okkur hefur greint á um það.

Fyrir síðustu kosningar var hæstv. ráðherra ein þeirra sem sögðu mjög skýrt að það væri einfalt að afnema verðtryggingu á Íslandi, það væri ákvörðun, það væri spurning um vilja. Það var sagt í þessum ræðustól í aðdraganda kosninga.

Hæstv. ráðherra lagði líka fram frumvarp á síðasta þingi, ásamt þeim ráðherrum sem sitja með henni í ríkisstjórn fyrir hönd Framsóknarflokksins, um að setja þak á verðtrygginguna. Þess vegna finnst mér það skjóta skökku við, þegar hæstv. ráðherra hefur verið í ríkisstjórn í eitt og hálft ár, að við skulum ekki hafa séð neinar breytingar í þá veru. Við höfum ekki séð neinar aðgerðir sem miða að því að verðtrygging verði afnumin, ekki eina einustu.

Þvert á móti er verið að taka ákvörðun um að Íbúðalánasjóður muni ekki bjóða upp á óverðtryggð lán heldur halda áfram að bjóða eingöngu upp á verðtryggð lán. Það er eitt að segja hluti sem hljóma vel en oft er erfiðara að fylgja þeim eftir. Mér finnst hæstv. ráðherra skulda okkur það að fara yfir það hvernig hún ætlar að uppfylla þessi loforð og útskýra með hvaða hætti verðtrygging verði afnumin á þessu kjörtímabili vegna þess að um það var rætt, (Forseti hringir.) um það var skrifað og um það hafa verið lagðar fram tillögur.