málefni tónlistarmenntunar.
Virðulegur forseti. Ég þakka þessa umræðu. Ég hef nánast frá því ég var á unglingsaldri og fram á fullorðinsaldur notið aðstoðar tónlistarkennara og geri nú eftir áramót enn eina atrennuna að tónlistarnámi mínu.
En ég er ekki kominn hingað til að taka þátt í keppninni um ást á tónlistarkennurum þótt ég geti örugglega skorað mjög hátt í þeirri keppni. Kjaramál verða ekki leyst á þessum vettvangi en það er gott að við séum að ræða þetta. Ég vil bara rétt aðeins koma inn á mikilvægi hinna svokölluðu skapandi greina í samfélagi okkar sem ég held að fólk átti sig ekki alltaf nógu vel á. Undirstöðuatvinnuvegir okkar eru auðvitað sjávarútvegur, útflutningur áls og ferðamenn — og svo skapandi greinar.
Í tíð síðustu ríkisstjórnar var samþykkt áætlun þar sem lögð var sérstök áhersla á þessar greinar. Það voru settir inn miklir fjármunir í að undirbyggja með margvíslegum hætti þær greinar sem kallaðar hafa verið skapandi greinar.
Því miður erum við ekki nógu meðvituð um það hér á vettvangi ríkisins, alla vega ekki á þessu kjörtímabili, hvað þetta skiptir miklu máli. Það er þannig að þegar maður fer um heiminn og hittir fólk sem hefur kannski takmarkaða þekkingu á Íslandi að oftast er spurt út í tónlistarmenn sem fólk kannast við á Íslandi, frekar en að við séum miklir framleiðendur áls eða veiðimenn þorsks.
Ég fer kannski aðeins meira ofan í efnisatriði þessarar umræðu í síðari innleggi mínu en mér finnst mikilvægt að menn hafi þetta í huga. Þetta er eitthvað sem skiptir gríðarlega miklu máli og við verðum að undirbyggja það í öllum okkar áætlunum og því hvernig við forgangsröðum fjármunum í þessu samfélagi.