144. löggjafarþing — 32. fundur,  13. nóv. 2014.

málefni tónlistarmenntunar.

[11:40]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Þessi umræða er þörf og hana ber að þakka. Það er ljóst að tónlistarfræðsla eða tónlistarskólinn er á forræði sveitarfélaga og styr um það hvar ríkið ætti að taka við eða koma inn hefur staðið lengi.

Það er algjörlega ljóst í mínum huga, hæstv. forseti, að eðli þessa náms er annað en eðli bóklegs náms og annars verklegs náms. Þess vegna verður að ná samkomulagi á milli ríkis og sveitarfélaga um hver á að gera hvað. Ef grunnnámið ætti að vera á höndum sveitarfélaga eins og er með grunnskólann ætti framhalds- og miðnámið að vera á höndum ríkisins og vegna þess að tónlistarnám og annað listnám er einingarbært inn í framhaldsskólana hlýtur ríkið með einhverjum hætti að þurfa að taka þátt í því námi.

Það gengur ekki að við séum enn þá árið 2014 að ræða um hvernig þessum málaflokki eigi að vera háttað. Ef ríkið og við sem setjum hér lög höfum ekki kjark til þess að taka upp lög um tónlistarskóla og breyta þeim í þá veru að eðli námsins verði breytt og það sé skýrt fyrir nemendur hvert ferlið er og hver eigi að gera hvað þá veit ég ekki hvað við ættum að gera.

Ég fer með orð ágæts einstaklings í tengslum við þá kjaradeilu sem nú er í gangi: Hvernig værum við ef tónlist yrði tekin út úr lífi okkar? Ef engin tónlist yrði spiluð í útvarpi, ef engin tónlist væri í lífi okkar? Það hlyti að vera snautt og það er okkar að koma þessu verkefni í höfn, að það sé skýrt fyrir nemendur sem stunda tónlistarnám hvernig þeir geti gert það og hverra er að halda utan um það.