málefni tónlistarmenntunar.
Hæstv. forseti. Í sjálfu sér er ekki miklu við þetta að bæta. Ég tek heils hugar undir það sem hv. þm. Ragnheiður Ríkharðsdóttir var að segja hér. Það er auðvitað kominn tími til að við reynum að skilgreina betur hlutverk hvers þetta er. Hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson vakti líka athygli á þessu. Það er ekki endalaust hægt að togast á um hver á að borga.
Ég held að eðlileg skil séu á milli þess að ríkið taki framhaldsnámið og að einhverju leyti miðnámið en annað sé hjá sveitarfélögunum.
Mikilvægast er líka að setja lög um tónlistarskólann, ganga þá skýrt frá því að hann sé hluti af okkar skólakerfi með réttindi og skyldur hvað það varðar.
Það er líka mjög mikilvægt að fjalla um nemendagjöldin vegna þess að þau eru afar misjöfn í tónlistarskólunum eftir landsvæðum og jafnvel innan skóla líka. Það þarf með einhverjum hætti að kortleggja hvað nemendur eiga að borga fyrir það nám, þ.e. hvað er eðlilegt hlutfall o.s.frv.
Í umræðunni hefur líka komið fram, ég vakti athygli á því í fyrri ræðu minni, að sumir hafa tilhneigingu til að líta á tónlistarnám og annað listnám og þannig skapandi greinar öðrum augum en bóknámsgreinar. Ég vakti athygli á því að full ástæða er til að vakta þessar greinar við breytingu á skólakerfinu, ef til styttingar kemur. Menn eru að skoða PISA endalaust og þá er fókusinn alltaf á ákveðnar námsgreinar eins og náttúrufræði, stærðfræði og tungumál. Mikilvæg forsenda fyrir efnahagslegri farsæld eða vexti er einmitt skapandi þátturinn, skapandi greinarnar. Það er ekki bara hátíðarræðuumræða, það hefur líka komið fram í umræðunni hversu mikill vöxtur hefur verið í þessum greinum, hversu mikilvægar þær eru líka fyrir efnahagslífið fyrir utan alla þá ánægju, lífsfyllingu og bætta sjálfsmynd og annað sem þessar greinar gefa.
Ég skora á ráðherra og Alþingi að beita sér fyrir því að við getum náð skýrri verkaskiptingu þarna og leyst þessa deilu hvað það varðar sem allra fyrst.