málefni tónlistarmenntunar.
Hæstv. forseti. Við erum að ræða um málefni tónlistarmenntunar og ég vil þakka málshefjanda, hv. þm. Katrínu Jakobsdóttur, og hæstv. ráðherra Illuga Gunnarssyni svör hans og innlegg í umræðuna. Sá kraftur og sú fjölbreytni og þau gæði sem eru í íslensku tónlistarlífi leiða til þess að maður hlýtur að draga þá ályktun að eitthvað hafi verið gert rétt í tónlistarkennslu á Íslandi. Maður upplifir að við höfum ákveðna sérstöðu, eins og hv. þm. Helgi Gunnarsson kom inn á áðan, það er upplifunin. Það hefur verið vísað hér í umræðunni í samkomulag á milli stjórnsýslustiganna ríkis og sveitarfélaga sem hv. þm. Katrín Jakobsdóttir ritaði undir sem menntamálaráðherra á sínum tíma og það er skýr afstaða allra sem hér hafa talað að það samkomulag hafi verið mjög jákvætt skref í að efla tónlistarnám og gera nemendum kleift að stunda tónlistarnám óháð búsetu og efnahag.
En enn og aftur eins og í málefnum sem snúa að því þegar við erum að flytja verkefni yfir til sveitarfélaga frá ríki má vera að verkaskiptingin sé skýr en þegar kemur að því að fjármagna laun og tæki og tól fer allt í hnút. Það virðist vera málið hér, það er sorglegt með viðbótarfjármagnið, þá er fjárhagsleg staða tónlistarskóla í uppnámi og að einhverju marki hefur verið gefið í skyn að þetta trufli kjaradeilu, kjarasamninga (Forseti hringir.) og það þurfum við að leysa.