144. löggjafarþing — 32. fundur,  13. nóv. 2014.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

158. mál
[12:08]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Þórunn Egilsdóttir) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nefndarálit með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007, er varðar hæfi dyravarða.

Nefndin hefur fjallað um málið og hefur borist umsögn frá Alþýðusambandi Íslands.

Í reglugerð nr. 585/2007 eru ákvæði um dyravörslu og hæfi dyravarða þar sem m.a. er mælt fyrir um að dyraverðir skuli vera að lágmarki 20 ára, megi ekki hafa gerst sekir um ofbeldis- eða fíkniefnalagabrot og að þeir skuli hafa lokið viðurkenndu námskeiði fyrir dyraverði. Með frumvarpinu er lagt til að sambærilegt ákvæði verði lögfest til að fullnægt sé áskilnaði 75. gr. stjórnarskrárinnar um að takmörkun á atvinnufrelsi skuli byggjast á lögum.

Í 1. gr. frumvarpsins er ákvæði reglugerðarinnar tekið upp í lög en þó þannig að tiltekið er að dyraverðir skuli ekki á síðastliðnum fimm árum hafa gerst sekir um ofbeldis- eða fíkniefnabrot en engin tímamörk eru í reglugerðinni. Nefndin leggur til eina breytingu til lagfæringar á frumvarpinu.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

Í stað orðanna „2. mgr.“ í inngangsmálslið 1. gr. komi: 2. málsl. 1. mgr.

Undir þetta rita auk þeirrar sem hér stendur hv. þingmenn Jón Gunnarsson, Haraldur Benediktsson, Kristján L. Möller, Ásmundur Friðriksson, Páll Jóhann Pálsson, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Björt Ólafsdóttir og Þorsteinn Sæmundsson.