skuldaleiðrétting, munnleg skýrsla forsætisráðherra, ein umræða.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér svokallaða skuldaleiðréttingu. Mig langar til að koma mér beint að efninu og spyrja okkur öll sem hér erum: Er hægt að bæta öllum það áfall sem íslenska efnahagshrunið og bankahrunið var? Hverjir urðu fyrir mestum höggum við bankahrunið á Íslandi? Voru það bara þeir sem áttu eignir og þeir sem áttu skuldir? Eða var það kannski, virðulegur forseti, fyrst og fremst íslenskur almenningur? Voru það kannski fyrst og fremst þeir sem urðu fyrir harðasta forsendubrestinum, launamenn sem urðu fyrir því að kaupmáttur launa dróst saman?
Við höfum nefnt stöðu leigjenda og stöðu þeirra sem hvorki eiga eignir né skuldir. En eigum við að staldra við það að almennir launamenn hafa ekki fengið kaupmáttarskerðingu sína bætta sem varð við efnahagshrunið? Kom það einhvern tímann til álita þegar menn eru hér að ræða um aðgerðir sem eiga að heita sanngjarnar og réttlátar og almennar? Hver er nú almennasta aðgerðin ef ekki sú að sinna samfélaginu í heild? Er það, virðulegur forseti, ekki almennasta aðgerðin, að sinna vegakerfinu, spítalanum, menntamálunum? Er það ekki hin raunverulega almenna aðgerð? Að ég tali nú ekki um að greiða niður skuldir ríkissjóðs.
Hér hafa þingmenn ríkisstjórnarflokkanna talað og nú síðast hv. þm. Willum Þór Þórsson. Honum verður tíðrætt um hlutverk ríkissjóðs, að það sé að liðka til fyrir hringrás atvinnulífsins. Jú, það kann að vera að það sé eitt af mörgum hlutverkum ríkissjóðs og ríkisins, en, virðulegur forseti, er það ekki hlutverk ríkissjóðs að sjá til þess að hér sé almennt og sterkt heilbrigðiskerfi? Er það ekki hlutverk ríkisins að sjá til þess að menntaskólarnir, framhaldsskólarnir, háskólarnir, geti tekið við nemendum? Er það ekki hlutverk ríkisvaldsins?
Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, Oddgeir Ágúst Ottesen, skrifaði grein í apríl í vor í Morgunblaðinu og segir þá, með leyfi forseta:
„Staðreyndin er sú að allar bætur sem greiddar eru úr ríkissjóði eru á kostnað þeirra sem ekki fá bæturnar.“
Þetta var öllum ljóst þegar við vorum fyrir síðustu jól að tala um desemberuppbót atvinnulausra, að það væri á kostnað allra hinna, það væri á kostnað ríkissjóðs.
Virðulegur forseti. Þær aðgerðir sem hér er verið að tala um eru á kostnað þeirra sem ekki njóta aðgerðanna. Hverjir eru það? Hverjir eru það sem ekki njóta aðgerðanna? Það eru þeir sem eru leigjendur, þeir sem eiga ekkert, þeir sem eru 25 ára, þeir sem eru 20 ára, þeir sem eru fátækir í þessu landi, sem eiga ekki skuldir. Þá segja ríkisstjórnarflokkarnir: Séreignarlífeyrissparnaðurinn hjálpar svo mikið leigjendunum og unga fólkinu, þá geta þau sparað. Virðulegur forseti. Það þarf peninga til að spara. Það þarf að eiga til að spara.
Staðreyndin er sú að nákvæmlega þessi málflutningur endurspeglar firringu ríkisstjórnarflokkanna. Það er fyrir neðan allar hellur að þeir skuli tala þannig að leið fátæks fólks og ungs fólks í þessu landi sé að spara peninga til að geta einhvern tímann orðið eigendur. Það lýsir því að Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn eiga mjög langt í land með það að geta talist flokkar þessarar þjóðar allrar.