skuldaleiðrétting, munnleg skýrsla forsætisráðherra, ein umræða.
Virðulegur forseti. Mig langar hér í síðari ræðu minni um þetta mikilvæga mál að fara aðeins yfir það af hverju ég tel þetta ekki vera góða efnahagsaðgerð. Hér hafa nokkrir stuðningsmenn aðgerðanna, m.a. hv. þm. Willum Þór Þórsson, rakið það að í þeirra huga sé þetta fyrst og fremst skynsamleg efnahagsaðgerð. Ég er því algjörlega ósammála. Mér finnst þetta mjög óskynsamleg efnahagsaðgerð af margvíslegum ástæðum.
Mér finnst hlutverk ríkisvaldsins mjög ríkt þegar kemur að efnahagslífinu augljóslega. Hlutverk ríkisvaldsins er að reyna að stuðla að pólitískum og efnahagslegum stöðugleika, einhverjum fyrirsjáanleika í efnahagslífinu, reyna að stuðla að samfélagslegri og efnahagslegri ábyrgð fyrirtækja og einstaklinga í samfélaginu og reyna að hafa innviði sterka, alla grunnþjónustu, eins og samgöngur, heilbrigðisþjónustu og menntakerfi, það er hlutverk ríkisins. Og hafa öryggisnet fyrir þá sem geta ekki verið á vinnumarkaði og vinna að þeim verkefnum í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins og þar fram eftir götunum.
Það er dálítið merkilegt að það skuli vera í alvöru einhvers konar samhljómur um það á meðal stjórnarþingmanna því að þessi aðgerð er án fordæma. Hún snýst um að ríkið ætlar að blanda sér inn í markaðinn á mjög ruddalegan hátt, hún ætlar að taka yfir hluta af skuldbindingum sem einstaklingar hafa gert vitandi vits og á grunni þeirra forsendna sem ríkja og hafa ríkt um langt skeið í íslensku efnahagslífi, sem er óstöðugleiki. Ríkið býðst til að borga hluta af þessu. Þetta finnst mér mjög slæm aðgerð, ekki síst vegna þess hún getur ekki og má ekki hafa fordæmisgildi.
Ætlar ríkið alltaf að gera þetta? Mér finnst þetta vera lykilspurning sem blasir við eftir þessa umræðu. Er þetta svona skynsamleg efnahagsaðgerð? Á þetta þá að vera svona? Er ríkisvaldið í krafti meiri hlutans að segja við þá sem taka lán á Íslandi að forsendurnar hér eftir verði þær að ef eitthvað gerist þá muni ríkið koma og taka allt af og greiða hluta af þessu fyrir þig. Er það skynsamlegt? Eykur það ábyrgð á lánamarkaði á Íslandi? Eykur það stöðugleika? Myndast ekki stórbrotinn freistnivandi í samfélaginu hjá lánveitendum og lántakendum gagnvart því að í framtíðinni það sé allt í lagi að haga sér óskynsamlega á þessum markaði vegna þess að ríkisvaldið muni alltaf koma inn og taka kúfinn? Þetta er afleit aðgerð þegar kemur að því að skapa eitthvert skynsamlegt fordæmi um það hvernig við viljum haga stjórn efnahagsmála. Hún minnkar ábyrgð. Hún skapar stórbrotinn freistnivanda á þessum viðkvæma markaði ef það er virkilega einhver alvara í þeim orðum stjórnarþingmanna þegar þeir halda því fram að þetta sé virkilega góð efnahagsleg aðgerð.
Lækkar hún vexti? Nei, hún lækkar ekki vexti. Minnkar hún verðbólgu? Nei, líklega þvert á móti. Á hvaða hátt er þetta þá góð efnahagsleg aðgerð? Minnkar hún skuldir ríkissjóðs? Nei. Styrkir hún innviði samfélagsins? Nei. Er þessi aðgerð upp á einhverja 100 milljarða plús, 200 milljarða, að hafa góð áhrif á stemninguna á vinnumarkaði?
Pælið í því. Ríkisvaldið er að fara í þessi stórbrotnu fjárútlát a einhverjum efnahagslegum grundvelli og það er allt upp í loft á vinnumarkaði.
Hæstv. forsætisráðherra gat ekki verið hér vegna þess að hann þurfti að fara á samningafund með ASÍ. ASÍ er örugglega ekkert æðislega ánægt þessa dagana út af ömurlegum horfum. Og þessi stórbrotna aðgerð hefur ekki einu sinni jákvæð áhrif á það allt saman. Til hvers er þá leikurinn gerður?
Mönnum verður tíðrætt hér um skuldastöðu heimilanna. Ég legg ríka áherslu á að það var gríðarlega mikið og augljóst tilefni til að hafa áhyggjur af skuldastöðu heimilanna á árunum eftir hrun. Það var augljóst. Skuldahlutfall heimilanna af landsframleiðslu rauk upp og það var ýmislegt gert, það var mjög mikið gert sem þurfti að gera, en á einhverjum tímapunkti, ég held að sá tímapunktur hafi komið fyrir nokkru, þá varð að segja: Núna er þessi lánamarkaður eins og hann er og skuldastaðan verður að fá að leiðrétta sig eftir þeim lögmálum sem þarna gilda. Eignaverð hækkar. Það hefur hækkað. Laun hækka yfirleitt meira en vísitala. Það hefur gerst. Það hefur orðið kaupmáttaraukning. Það er hagvöxtur. Og skuldastaða heimilanna, viti menn, er nú komin niður í 97% af landsframleiðslu. Úr Seðlabankanum heyrist það álit að það sé vel sambærilegt við skuldahlutföll þeirra þjóða sem við eigum að bera okkur saman við í þessu. Við þurfum að bera okkur saman við þjóðir þar sem ríkir svona rík séreignarstefna á húsnæðismarkaði. Þjóðin er einfaldlega þess eðlis hvað það varðar að við viljum eignast húsnæði. Þess vegna skuldsetja íslensk heimili sig. Miðað við að þetta sé yfirleitt stemningin á Íslandi að það er séreignarstefna, þá verður skuldahlutfallið alltaf hátt.
Það sem meira er, eins og Seðlabankinn hefur ágætlega rakið í skýrslum, þá er sparnaður hér á landi, varasjóðir, sparnaður sem hægt er að sækja í, sparnaður til sveiflujöfnunar, mjög lítill á Íslandi. Íslendingar spara í steinsteypu. Þeir taka lán, byggja hús, svo greiða þeir niður lánin og þau minnka og þar kemur veðsetningarmöguleiki í steinsteypunni, þeir taka það út til sveiflujöfnunar. Þannig að úr Seðlabankanum heyrist meðal annars það álit að þessi leiðrétting muni leiða til þess að 65% af upphæðinni muni birtast í auknu veðrými sem væntanlega mjög margir munu nýta til sveiflujöfnunar í sínum heimilisrekstri og skuldahlutfallið helst líklega á þessu bili eitthvað undir 100% af landsframleiðslu. Það er talað um að það sé í jafnvægi.
Þannig að til þess að lækka skuldir heimilanna eru menn bara að berjast við vindmyllur í þessu sýnist mér.
Svo vil ég bara leiðrétta eitt. Þetta er ekki almenn aðgerð. Þetta er aðgerð fyrir tiltekin heimili, ekki öll heimili, (Forseti hringir.) helming þeirra. Það er helmingur heimilanna í landinu sem sótti um þetta. Þetta er bara fyrir þau heimili sem skulduðu verðtryggð húsnæðislán (Forseti hringir.) á ákveðnu bili, þetta er ekki fyrir leigjendur og ekki fyrir þann helming íslenskra heimila (Forseti hringir.) sem skuldaði ekki (Forseti hringir.) á þessum tíma. Hún er ekki almenn. (Gripið fram í: Þetta snýst ekki um það.)