störf þingsins.
Hæstv. forseti. Um helgina fagnar Akureyrarflugvöllur 60 ára afmæli sínu og það er vissulega fagnaðarefni sem vert er að halda upp á.
Flugsamgöngur hafa alltaf verið mikilvægur tengiliður milli höfuðborgarinnar og höfuðstaðar Norðurlands. Flugsamgöngur eru mikilvægur þáttur í samgönguneti allra landsmanna og greiða leið milli staða og stofnana. Flugsamgöngur eru öryggisþáttur. Það getur skilið milli lífs og dauða að komast á sem stystum tíma undir læknishendur og gegnir flugið þar mikilvægu hlutverki. Flugsamgöngur eiga að vera almenningssamgöngur. Það er því verulegt áhyggjuefni að almenningur telur sig vart hafa efni á að nýta sér innanlandsflug í sama mæli og áður tíðkaðist vegna þess hve fargjöld í flugi eru dýr. Að fara með fjölskylduna í flugi er munaður sem fáir hafa efni á.
Þurfi vinnustaðir eða fyrirtæki að senda marga starfsmenn í einu milli staða er algengt að menn sameinist í bíla og keyri á milli þó að það þýði jafnvel dags eða tveggja daga vinnutap í ferðir fram og til baka. Þetta þýðir síðan að eftir því sem flugið er minna notað mun ferðum milli einstakra staða fækka eða það sem verra er jafnvel leggjast af. Það hefur gerst og með tilheyrandi óhagræði.
Undanfarið hefur verið að störfum vinnuhópur skipaður af innanríkisráðherra. Hann hefur haft það hlutverk að greina samsetningu kostnaðarþátta í fargjaldi í innanlandsflugi með það að markmiði að leita leiða til að lækka flugfargjöld. Sá hópur hefur ekki lokið störfum enn en ég vænti þess að sú vinna fari að taka enda. Hver niðurstaðan verður er ekki hægt að segja til um nú.
Hins vegar er ljóst að taka þarf ákvörðun um hvaða hlutverki innanlandsflugið á að gegna, hvort við sjáum fyrir okkur breytt hlutverk og í þá hvaða átt. Eigi það að vera sá samgöngumáti sem við viljum að það sé þurfa fargjöld að lækka verulega.